Senda inn hugmynd
Hér getur þú sent okkur hugmyndina þína í gegnum netið eða prentað út umsókn og sent okkur í pósti.
Það eina sem þú þarft að gera er að senda þær upplýsingar sem beðið er um. Ef þú sendir umsókn inn rafrænt, þarftu að setja mynd af hugmyndinni þinni í viðhengi. Viðhengið getur verið mynd sem þú teiknar og tekur mynd af eða teikning sem gerð er í myndvinnsluforriti.
Þú mátt senda inn eins margar hugmyndir og þú vilt. Þetta geta bæði verið ný útfærsla að lausnum sem eru þegar til, eða alveg ný hugmynd.
Kíktu endilega á „Kveikjur að hugmyndum“
Vinsamlega athugið að ekki geta fleiri en tveir einstaklingar verið saman með eina hugmynd þar sem það hentar alls ekki að fleiri séu að vinna saman á vinnustofunni.
Frestur til að skila inn hugmyndum rennur út miðvikudaginn 9. apríl 2025.
Umsóknarblöð skal senda á :
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Menntavísindasvið Háskóla Íslands,
Stakkahlíð, 105 Reykjavík
Allar hugmyndir eru velkomnar 🙂