NKG 2015 – nöfn vinningshafa

Lokahóf NKG2015 fór fram 31.5 í Háskólanum í Reykjavík.  Mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson sá um afhendingu farandbikara NKG og Dr. Ari Kristinn Jónsson um afhendingu aðalverðlauna. Hugmyndasmiðir stigu á stokk eftir framsöguþjálfun í vinnusmiðju frá JCI og heilluðu alla upp úr skónum með hugmyndum sínum og ræðusnilld.

Verðlaunahafar fengu glæsileg verðlaun

Gull      IdeaPad Flex2 Lenovo fartölva frá Nýherja

Silfur    Námskeið í tölvuleikjaforritun frá Skema, Pebble snjallúr frá Tölvutek og flíspeysa frá Cintamani

Brons   Sony ActionCam frá Nýherja

Aukaverðlaun

* Gjafabréf í FabLab ferðalag í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

* Gjafabréf í Háskóla unga fólksins, vorið 2016, í boði HÍ

* Gjafabréf í IKEA að verðmæti 20.000 kr fyrir verðlaunahafa

* Gjafabréf í IKEA fyrir alla þátttakendur að verðmæti 10.000kr

 

Bikarhafar NKG2015
Birkir Snær Ingólfsson 5 Kodda dagbók Grunnskóli Hornafjarðar JCI BIKAR
Lilja Ósk Atladóttir 7 Strætóvísir Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri Guðrúnarbikar
Jónas Þórir Þrastarson 6 Fjarstýrður snjómokstursbíll með sóp Grunnskóli Reyðarfjarðar Tæknibikar Paul