Úrslit NKG 2023

Hægt er að ýta á nafn hugmyndar, til að sjá nánar um hana.

Að neðan má svo sjá lista yfir þær 25 hugmyndir sem hefðu komist á vinnustofuna/úrslitin, ef hún hefði verið haldin. 

Aðalverðlaun

Aðalverðlaun NKG 2023 hlýtur Jóhanna María Grétarsdóttir Noack í 6. bekk Árskóla, með hugmyndina Ultimo.  Hún hlítur að verðlaunum 50.000 kr.  ásamt verðlaunabikar og viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.

Lýsing hugmyndar: Ultimo er bæði hlutur og app. Appið skannar matinn og hvenær hann rennur út. Þá sendir appið skilaboð á skjáinn sem er t.d. fest við kæli.
Kennari Jóhönnu er Katrin Ingólfsdóttir. 

Forritunarbikar NKG

Guðmundur Ásgeir Ingólfsson í 6. bekk Landakotsskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf, með hugmyndina Heilakóðari. Hann hlýtur að verðlaunum 25.000 kr. ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands.

Lýsing hugmyndar: forrit til um hvernig á að læra stærðfræði eða læra tungumál með því að nota forritun. Líka ávinningur af leik þar sem þú færð verðlaun og stig.

Kennari Kristjáns er Sinéad McCarron.

Hönnunarbikar NKG

Bríet Jökla Ólafsdóttir í 6. bekk Sjálandsskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmyndina Stólar eða Borð? Hún hlýtur að verðlaunum 25.000 kr. ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands

Lýsing hugmyndar: Kubbur sem inniheldur 4 stóla og borð. Hægt að taka stólana úr úr kubbnum

Kennarar Bríetar eru Silja Kristjánsdóttir og Guðrún Dóra Jónsdóttir.

Samfélagsbikar NKG

Guðrún Gunnarsdóttir og Júlía Oliwia Zarxycka, í 7. Hlíðarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun, með hugmyndina Asthmair. Þær hljóta að verðlaunum 25.000 kr. ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands

Lýsing hugmyndar: Asthmair sem er endurnýtanlegt púst sem maður kaupir nýtt hylki í þegar hylkið manns er búið.

Kennari Guðrúnar og Júlíu er Fríða Björk Ólafsdóttir.

Samgöngubikar NKG

Ísabella Jónsdóttir, í 5. Heiðarskóla hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi lausn sem tengist samgöngumálum, með hugmyndina Íslandsappið. Hún hlýtur að verðlaunum 25.000 kr. ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands

Lýsing hugmyndar: Maður hefur app í símanum til að auðvelda ferðalög um Ísland.

Kennari Ísabellu er Kristín Sesselja Kristinsdóttir

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar

Hugrún Birna Gunnarsdóttir og Lára Hlín Þorsteinsdóttir  í 7. bekk Urriðaholtsskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu, með hugmyndina Eldrei aftur. Þær hljóta að verðlaunum 25.000 kr. ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands

Lýsing hugmyndar: Hugmyndin virkar þannig að hún skannar hitann á eldavélinni og pípar hátt ef gleymt er að slökkva á henni.

Kennari Hugrúnar og Láru er Jónína Klara Pétursdóttir.

Umhverfisverðlaun NKG og Hugverkastofu

Kristján Gíslason Molphy í 5. bekk Vesturbæjarskóla hlýtur viðurkenningu fyrir umhverfisvæna nýsköpun, með hugmyndina MorgunKornarBrúsi. Hann hlýtur að verðlaunum 25.000 kr. ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands

Lýsing hugmyndar: Nestisbox með 2 hólfum. 1 fyrir mjólk og hitt fyrir morgunkornið

Kennari Kristjáns er Arna Björk H. Gunnarsdóttir.

Lista allra hugmynda sem hefðu komist á vinnustofuna/úrslitin, ef hún hefði verið haldin. Ýtið á nafn hugmyndar til að sjá nánar um hana:

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2023 – topp 25 úrslitahugmyndir
Hugmynd Nafn nemenda Nafn hópfélaga Kennari Skóli bekkur
Aðstoðarappið Lilja Bergrós Kristjánsdóttir og Steinunn Elísa Hauf Eydal Ásta S Ólafsdóttir Víðistaðaskóli 7
Lýsing: App þar sem að fólk sem vill aðstoða með hvað sem er getur skráð sig og þeim sem vantar aðstoð geta leitað til þeirra.
Artplex Ásdís Elísa Jónsdóttir og Antonía Elísabet Ólafsdóttir Berglind Elva Gunnlaugsdóttir Djúpavogsskóli 6
Lýsing: Verkfærakassi fyrir listamenn
Asthmair Guðrún Gunnarsdóttir og Júlía Oliwia Zarxycka Fríða Björk Ólafsdóttir Hlíðarskóli 7
Lýsing: Asthmair sem er endurnýtanlegt púst sem maður kaupir nýtt hylki í þegar hylkið manns er búið.
Auto klósettsetulokari 9000 Arnór Atli Pálsson og Daníel Már Ólafsson Kristín Brynja Gunnarsdóttir Patrekesskóli 6
Lýsing: Ef enginn er á klósettinu, þá lokast setan sjálfkrafa
Áfram umhverfið Lilja Bergrós Kristjánsdóttir og Steinunn Elísa Hauf Eydal Ásta S Ólafsdóttir Víðistaðaskóli 7
Lýsing: Appið hjálpar okkur að hugsa betur um umhverfið.
Blýantsljós Björg Ákadóttir Dagur Emilsson Grandaskóli 6
Lýsing: Blýantur með litlu ljósi framan á
Cubes Þorsteinn Axelsson Andri Snær Þorvaldsson Brúarskóli – Vesturhlíð 6
Lýsing: Borðspil fyrir 2 leikmenn. Takmarkið er að losa sig við alla kubbana
Eineltispeysan  Aurora Sólrós Servo og Embla Fönn Freysdóttir Silja Kristjánsdóttir og Guðrún Dóra Jónsdóttir Sjálandsskóli 7
Lýsing: Peysan sýnir að þú styður ekki einelti. Skólar geta tekið þátt í átaki og merkt peysunar sínum skóla
Eldrei aftur Hugrún Birna Gunnarsdóttir og Lára Hlín Þorsteinsdóttir Jónína Klara Pétursdóttir Urriðaholtsskóli 7
Lýsing: Hugmyndirn virkar þannig að hún skannar hitann á eldavélinni og pípar hátt ef gleymt er að slökkva á henni.
Fyrsta foreldrið Tinna Björg Brynjarsdóttir og Ólöf Helga Ólafsdóttir Unnur Sveinbjörnsdóttir Varmahlíðarskóli 7
Lýsing: Forrit til að hjálpa fyrstu foreldrum við allskonar barnamál
Heilakóðari Guðmundur Ásgeir Ingólfsson Sinéad McCarron Landakotsskóli 6
Lýsing: forrit til um hvernig á að læra stærðfræði eða læra tungumál með því að nota forritun. Líka ávinningur af leik þar sem þú færð verðlaun og stig.
Heilsuappið Sara Dís Ingólfsdóttir og Katla Lena Ólafsdóttir Jónína Klara Pétursdóttir Urriðaholtsskóli 7
Lýsing: Appið fylgist með því hvort þú ert búin að taka lyfin þín og sendir þér tilkynningar um að muna að taka lyfin, drekka vatn ofl. sem tengist heislunni
I-read Selma Rún Arnarsdóttir Sinéad McCarron Landakotsskóli 6
Lýsing: Hugmyndin er raddgreiningarapp sem hlustar á þig lesa upphátt og getur leiðrétt þig.
Íslandsappið Ísabella Jónsdóttir Kristín Sesselja Kristinsdóttir Heiðarskóli 5
Lýsing: Maður hefur app í símanum til að auðvelda ferðalög um Ísland.
Lumos sprotinn Sigríður Ísold Jökulsdóttir Ásta S Ólafsdóttir Víðistaðaskóli 6
Lýsing: Ljóssproti með lítilli bjartri peru sem maður hristir til að kveikja ljósið. Settur í stand til hleðslu. Auðvelt að taka með sér td ef maður vaknar á nóttunni og þarf að fara á klósettið.
MorgunKornarBrúsi Kristján Gíslason Molphy Arna Björk H. Gunnarsdóttir Vesturbæjarskóli 5
Lýsing: Nestisbox með 2 hólfum. 1 fyrir mjólk og hitt fyrir morgunkornið
Náttúrudróni Trausti Hrafn Björnsson Silja Kristjánsdóttir og Guðrún Dóra Jónsdóttir Sjálandsskóli 7
Lýsing: Dróni sem skannar umhverfið og tínur upp smárusl
Pattur Davíð Antti Liljar Geirsson og Andri Viðar Arnarson Friðrika Ýr Einarsdóttir Brekkubæjarskóli 6
Lýsing: Þetta er panna sem maður getur breytt í pott með því að lyfta upp hliðunum
Peran Benedikt Friðriksson og Þorbergur Orri Halldórsson Sigrún Baldursdóttir og Sveinn Bjarki Tómasson Melaskóli 6
Lýsing: Ljósastaurar eru með ljósaperu sem skiptir um lit eftir hitastigi úti til að hjálpa börnum að klæða sig rétt eftir veðri.
Spilum og lærum! Kári Tuvia Ruebner Kjartansson og Jósef Ómarsson Sinéad McCarron Landakotsskóli 6
Lýsing: spil sem getur hjálpað krökkum sem eru að flýja úr öðru landi (flóttamenn) og krökkum sem eru að flytja til Íslands til að læra Íslensku sem annað tungumál.
Stólar eða Borð? Bríet Jökla Ólafsdóttir Silja Kristjánsdóttir  og Guðrún Dóra Jónsdóttir Sjálandsskóli 6
Lýsing: Kubbur sem inniheldur 4 stóla og borð. Hægt að taka stólana úr úr kubbnum
Strekkjanlegur hjólalás Bragi Styrmisson og Hafliði Njarðarson Arna Björk H. Gunnarsdóttir Vesturbæjarskóli 6
Lýsing: Hjólalás sem hægt er að strekkja
Ultimo Jóhanna María Grétarsdóttir Noack Katrin Ingólfsdóttir Árskóli 6
Lýsing: Ultimo er bæði hlutur og app. Appið skannar matinn og hvenær hann rennur út. Þá sendir appið skilaboð á skjáinn sem er t.d. fest við kæli.
Uppblásið mark Sunneva Sigríður Andradóttir Flóra Guðlaugsdóttir Háteigsskóli 5
Lýsing: Uppblásanlegt mark sem auðvelt er að pakka saman og setja upp hvar sem er
Öðruvísi tíska Bragi Sumarliði M. Eliassen Sinéad McCarron Landakotsskóli 6
Lýsing: Kynlaus tískulínu.