Yfir 1200 hugmyndir, frá 38 skólum víðs vegar af landinu, bárust að þessu sinni. Dómnefnd valdi 26 hugmyndir, sem 40 nemendur standa að baki,  í vinnusmiðjuna, þ.e. úrslitakeppni NKG 2018, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík, dagana 24. og 25. maí. 

Aðal vinningshafar í NKG 2018 er eftirfarandi:

Fyrsta sæti: Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla, með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið, en það er vindskeið sem sett er á  flugvéladekk, svo þau fara að snúast fyrir lendingu. Viðurkenninguna fá þeir fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Acer Swift 3 SF314 14” fartölva að verðmæti 120 þús, í boði ELKO

Annað sæti: Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur, en það er Lítill skápur til að geyma handklæði, síma ofl. í sturtuklefunum sjálfum. Viðurkenninguna fær hann fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung A8 farsími að verðmæti 70.000 kr. í boði ELKO

Þriðja sæti: Salka Nóa

Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla,  með hugmynd sína Hjálmalás, en það Hjólreiðahjálmur sem hægt er að nota til að læsa reiðhjólinu. Viðurkenninguna fær hún fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Sigurvegarar í vinningsflokkum NKG eru eftirfarandi:

Fjármálabikar Arion banka: Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði sem hljóta „viðurkenningu fyrir bestu fjármálalausnina“ með hugmynd sína Vasapeningar. Verðlaun: Samsung J5 farsími í boði ELKO

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar: Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla í Skagafirði hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu með hugmynd sína Rúlluendastimpill. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Samfélagsbikar NKG: Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Lestrarhjálp. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Forritunarbikar NKG: Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf með hugmynd sína Fjölskyldutími. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Hönnunarbikar NKG: Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmynd sína Kúlukoddar. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO

Örforritun Kóðans: Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega nýsköpun þar sem forritunar er þörf, með hugmynd sína Svefnvaki

Umhverfisverðlaun Einkaleyfisstofu: Freyja Gísladóttir  og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, sem hljóta  viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun á sviði umhverfismála með hugmynd sína Plastleysari

Ræðubikar JCI: Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á ræðunámskeiði JCI.

 

Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt

gjafabréfi í FAB LAB: verðmæti allt að 50.000 kr. Um er að ræða tveggja daga ferð í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.Innifalið eru ferðir með Herjólfi, kennsla, efni, matur og gisting:

Kristófer H. Kjartansson í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Regnshaldir(kápa)

Ásdís Ólafsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Langur sópur

Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla með hugmynd sína Kúlukoddar

Eyrún Hjálmarsdóttir og Valdís Una Guðmannsdóttir í Flúðaskóla  með hugmynd sína SiliGos

Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hjálmalás

Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Gufusogari

Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Svefnvaki

Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Rúlluendastimpill

Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur

Ásdís Rún Grímsdóttir og Ísold Assa Guðmundsdóttir í Kerhólsskóla með hugmynd sína Fjölnota hólfapoki

Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í Háskóla unga fólksins 2019

 Lydía Einarsdóttir og Þóra Emelía Ólafsdóttir í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Sauðfjárteljari

Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði með hugmynd sína Vasapeningar

Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið

Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla með hugmynd sína Fjölskyldutími

Kristján Nói Kristjánsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hitamælispannan

Freyja Gísladóttir og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar með hugmynd sína Plastleysari

Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í IKEA:

Karen Óttarsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Snúskápur

Brynja Bjarnadóttir í Sæmundarskóla með hugmynd sína Lyklaskál

Elsa Kristín Arnaldardóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Næringarappið

Ísabella Björk Gestsdóttir og Sunneva Þorvaldsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Snúruhulstur

Jóhann Tyron De Jesus í Brúarskóli, Vesturhlíð með hugmynd sína lóðréttur snagi

Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Lestrarhjálp

Valborg Lilja Gunnarsdóttir og Ásthildur Una Jónsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Lyklatafla

Viðar Gauti Jónsson og Matthías Fossberg í Kerhólsskóla með hugmynd sína Kúku-minni

Vilji – Hvatningarverðlaun kennara. Í ár hljóta 2 kennarar viðurkenninguna, fyrir framúrskarandi störf til eflingar nýsköpunar-menntunar á Íslandi og hljóta báðir  nafnbótina „ Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2018“ ásamt verðlaunum að fjárhæð 125.000 kr, í boði Samtaka Iðnaðarins:  Sædís Arndal í Hofsstaðaskóla og Arna Björk H. Gunnarsdóttir í Vesturbæjarskóla