NKG 2012 – nöfn vinningshafa
Verðlaunahafar NKG 2012 ásamt Katrínu Jakobsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra.
Tólf hugmyndir fengu vegleg verðlaun í fjórum flokkum en sigurvegarar voru:
Landbúnaður: Kristinn Knörr Jóhannesson, Grunnskólanum austan vatna varð hlutskarpastur en hann kynnti fjármerkjaskanna sem nota má til að staðsetja sauðfé með gps tækni.
Tölvur og tölvuleikir: María Jóngerð Gunnlaugsdóttir, Egilsstaðaskóla, en henni datt í hug að tölvugerður kennsluleikur um líkamann myndi auka áhuga nemenda á náttúrufræði.
Uppfinningar: Óttar Egill Arnarsson, Hofsstaðaskóla hlaut fyrstu verðlaun fyrir „Beltisbíl” sem ætlað er að auka öryggi í umferðinni þar sem hann getur ekki verið í gangi nema allir farþegar séu í öryggisbelti.
Útlits- og formhönnun: Ægir Örn Kristjánsson úr Hofsstaðaskóla hannaði „Plastver” sem er varnarkassi úr plasti fyrir flugeldaskotkökur þannig að hægt sé að draga úr hættu við sprengingu þeirra.