Yfir 1200 hugmyndir, frá 38 skólum víðs vegar af landinu, bárust að þessu sinni. Dómnefnd valdi 26 hugmyndir, sem 40 nemendur standa að baki, í vinnusmiðjuna, þ.e. úrslitakeppni NKG 2018, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík, dagana 24. og 25. maí.
Aðal vinningshafar í NKG 2018 er eftirfarandi:
Fyrsta sæti: Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla, með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið, en það er vindskeið sem sett er á flugvéladekk, svo þau fara að snúast fyrir lendingu. Viðurkenninguna fá þeir fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Acer Swift 3 SF314 14” fartölva að verðmæti 120 þús, í boði ELKO
Annað sæti: Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur, en það er Lítill skápur til að geyma handklæði, síma ofl. í sturtuklefunum sjálfum. Viðurkenninguna fær hann fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung A8 farsími að verðmæti 70.000 kr. í boði ELKO
Þriðja sæti: Salka Nóa
Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Hjálmalás, en það Hjólreiðahjálmur sem hægt er að nota til að læsa reiðhjólinu. Viðurkenninguna fær hún fyrir nýsköpun, raunsæi og útfærslu hugmyndar ásamt dugnaði og eljusemi í vinnustofu. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Sigurvegarar í vinningsflokkum NKG eru eftirfarandi:
Fjármálabikar Arion banka: Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði sem hljóta „viðurkenningu fyrir bestu fjármálalausnina“ með hugmynd sína Vasapeningar. Verðlaun: Samsung J5 farsími í boði ELKO
Tæknibikar Pauls Jóhannssonar: Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla í Skagafirði hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu með hugmynd sína Rúlluendastimpill. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Samfélagsbikar NKG: Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Lestrarhjálp. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Forritunarbikar NKG: Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf með hugmynd sína Fjölskyldutími. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Hönnunarbikar NKG: Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmynd sína Kúlukoddar. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. í boði ELKO
Örforritun Kóðans: Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega nýsköpun þar sem forritunar er þörf, með hugmynd sína Svefnvaki
Umhverfisverðlaun Einkaleyfisstofu: Freyja Gísladóttir og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun á sviði umhverfismála með hugmynd sína Plastleysari
Ræðubikar JCI: Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á ræðunámskeiði JCI.
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt
gjafabréfi í FAB LAB: verðmæti allt að 50.000 kr. Um er að ræða tveggja daga ferð í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.Innifalið eru ferðir með Herjólfi, kennsla, efni, matur og gisting:
Kristófer H. Kjartansson í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Regnshaldir(kápa)
Ásdís Ólafsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Langur sópur
Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla með hugmynd sína Kúlukoddar
Eyrún Hjálmarsdóttir og Valdís Una Guðmannsdóttir í Flúðaskóla með hugmynd sína SiliGos
Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hjálmalás
Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Gufusogari
Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Svefnvaki
Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Rúlluendastimpill
Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur
Ásdís Rún Grímsdóttir og Ísold Assa Guðmundsdóttir í Kerhólsskóla með hugmynd sína Fjölnota hólfapoki
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í Háskóla unga fólksins 2019
Lydía Einarsdóttir og Þóra Emelía Ólafsdóttir í Varmahlíðarskóla með hugmynd sína Sauðfjárteljari
Saga Líf Ágústdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði með hugmynd sína Vasapeningar
Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið
Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla með hugmynd sína Fjölskyldutími
Kristján Nói Kristjánsson í Vesturbæjarskóla með hugmynd sína Hitamælispannan
Freyja Gísladóttir og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar með hugmynd sína Plastleysari
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í IKEA:
Karen Óttarsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Snúskápur
Brynja Bjarnadóttir í Sæmundarskóla með hugmynd sína Lyklaskál
Elsa Kristín Arnaldardóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Næringarappið
Ísabella Björk Gestsdóttir og Sunneva Þorvaldsdóttir í Hofstaðaskóla með hugmynd sína Snúruhulstur
Jóhann Tyron De Jesus í Brúarskóli, Vesturhlíð með hugmynd sína lóðréttur snagi
Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla með hugmynd sína Lestrarhjálp
Valborg Lilja Gunnarsdóttir og Ásthildur Una Jónsdóttir í Seljaskóla með hugmynd sína Lyklatafla
Viðar Gauti Jónsson og Matthías Fossberg í Kerhólsskóla með hugmynd sína Kúku-minni
Vilji – Hvatningarverðlaun kennara. Í ár hljóta 2 kennarar viðurkenninguna, fyrir framúrskarandi störf til eflingar nýsköpunar-menntunar á Íslandi og hljóta báðir nafnbótina „ Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2018“ ásamt verðlaunum að fjárhæð 125.000 kr, í boði Samtaka Iðnaðarins: Sædís Arndal í Hofsstaðaskóla og Arna Björk H. Gunnarsdóttir í Vesturbæjarskóla