Vinningshafar í NKG 2019 er eftirfarandi:
Fyrsta sæti
Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba með hugmynd sína Hafragrautaruppáhellari sem er Tímastilltur pottur til að elda hafragraut. Sett er vatn í pottinn og hráefni, tíminn stilltur. Pottur fer svo af stað, sýður vatnið og fer svo hráefnið sjálfkrafa saman við. Verðlaun: Hp fartölva að verðmæti 140 þús.
Annað sæti
Rakel Sara Þórisdóttir með hugmynd sína HækkaLækkar en það er fatahengi fyrir unga krakka sem ná ekki upp í fatahengi. Hægt að hækka og lækka fatahengið, með einu handartaki. Verðlaun: Samsung Galaxy S9 farsími að verðmæti 85.000 kr.
Þriðja sæti
Ásgeir Máni Ragnarsson með hugmynd sína Hólfið. Hólfið er hólfaskiptur vatnsbrúsi en honum er skipt niður í átta hólf. Það kemst 0,2 l í hvert hólf. Verðlaun: Samsung Galaxy A40 farsími að verðmæti 40.000 kr.
Tæknibikar Pauls
Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu með hugmynd sína Bílastopparinn. Bætt umferðaröryggi. Geisli og viðvörunarhljóð kemur upp, þegar/ef bilar fara yfir á rauðu ljósi. Verðlaun: Verðlaun: Samsung Galaxy A40 farsími að verðmæti 40.000 kr.
Samfélagsbikar NKG
Kristófer Bjarki Hafþórsson og Ívar Logi Jóhannsson hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Hjólastóll. Í þessum hjólastól er hægt að leggja niður bakið, svo hægt er liggja í hanum. Verðlaun: Samsung Galaxy A40 farsími að verðmæti 40.000
Forritunarbikar NKG
Kamilla Rós Gústafsdóttir og Ingunn Lilja Arnórsdóttir hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf með hugmynd sína Stærðfræðitímaappið. Þegar börn eru búin að vera lengi í símanum kemur appið upp og börnin þurfa að leysa stærðfræðidæmi til að geta haldið áfram í símanum. Verðlaun: Samsung Galaxy A40 farsími að verðmæti 40.000 kr.
Umhverfisbikar NKG
Karitas Ingvadóttir hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Áfyllingurinn en það eru margnota áfylliflöskur til að kaupa sjampó og hárnæringu úr sérstökum vélumí búðum. Verðlaun: Samsung Galaxy A40 farsími að verðmæti 40.000
Hönnunarbikar NKG
Hera Sjöfn Bjartsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmynd sína TannþráðsTannburstinn en það er tannbursti með tannþræði í skaftinu. Verðlaun: Samsung Galaxy A40 farsími að verðmæti 40.000 kr.
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í FAB LAB: verðmæti allt að 50.000 kr. Um er að ræða tveggja daga ferð í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.Innifalið eru ferðir með Herjólfi, kennsla, efni, matur og gisting:
Rebekka Öxndal Ingibjörnsdóttir með hugmynd sína Hnakkabelti
Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba með hugmynd sína Hafragrautaruppáhellari
Ásgeir Máni Ragnarsson með hugmynd sína Hólfið
Birgir Orri Helgason með hugmynd sína Húfuhaldarinn
Bríet Agnarsdóttir og Tinna Rós Halldórsdóttir með hugmynd sína Stærðfræðikennsla
Guðlaug Björk Benediktsdóttir með hugmynd sína Seglabókarmerki
Guðný Edda Einarsdóttir með hugmynd sína Stressblýantur
Kamilla Rós Gústafsdóttir og Ingunn Lilja Arnórsdóttir með hugmynd sína Stærðfræðitímaappið
Kristófer Bjarki Hafþórsson og Ívar Logi Jóhannsson með hugmynd sína Hjólastóll
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í Háskóla unga fólksins 2020
Tanja Kristín Ragnarsdóttir og Elma Katrín Steingrímsdóttir með hugmynd sína Upphá ristavél
Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth með hugmynd sína Bílastoppari
Karitas Ingvadóttir með hugmynd sína Áfyllingurinn
Roksana Pawelczyk með hugmynd sína Róla 2000xD
Sóley líf Konráðsdóttir og Regína Lea Ólafsdóttir með hugmynd sína Tungumálspil
Eftirfarandi fá viðurkenningarskjal fyrir að komast í úrslit Nýsköpunarkeppninnar ásamt gjafabréfi í IKEA, að verðmæti 10.000 kr:
Birkir Snær Ólafsson og Christiaan Bragi Ragnarsson með hugmynd sína Stafrófsbangsi
Ester Sól Jónsdóttir með hugmynd sína Gráturljós
Grímur Chunkuo Ólafsson með hugmynd sína Bátakútar
Guðmundur Týr Haraldsson með hugmynd sína Fuglaappið
Hera Sjöfn Bjartsdóttir með hugmynd sína TannþráðsTannburstinn
Ingibjörg Njálsdóttir og Rakel Sara með hugmynd sína Leiðréttingarappið
Katla Huld Halldórsdóttir og Henný Katrín Erlingsdóttir með hugmynd sína Glansvaskur
Oliwia Daria og Ragnheiður Kristinsdóttir með hugmynd sína Mikrapenni