Úrslit NKG 2025
Forvarnarbikar NKG
Hlýtur Þorri Pálmason, 6. bekk Djúpavogsskóla, með hugmyndina Krókhanski – tæki sem verndar hendur gegn krókum á línubátum.
Þorri hlýtur í verðlaun 20.000 kr. gjafabréf í ELKO og viðurkenningarskjal, undirritað af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennari: Anna Czeczko
Forritunarbikar NKG og SKEMA
Hlýtur Sara Rut Sigurjónsdóttir, 6. bekk Landakotsskóla, með hugmyndina Menntamál – þar sem notandinn leysir ráðgátur og kemst áfram með því að læra málfræði.
Sara hlýtur í verðlaun 20.000 kr. gjafabréf í ELKO og viðurkenningarskjal, undirritað af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennarar: Sinéad McCarron og Friðrik Steinn Friðriksson
Hönnunarbikar NKG og Hugverkastofu
Hlýtur Hekla Eiríksdóttir, 6. bekk Ölduselsskóla, með hugmyndina Pítustall – standur sem auðveldar að setja í pítu og borða hana.
Hekla hlýtur í verðlaun 20.000 kr. gjafabréf í ELKO, gjafabréf frá Hugverkastofu og miða á FlyOver Iceland, ásamt viðurkenningarskjali undirrituðu af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennari: Ása Gunnlaugsdóttir
Samfélagsbikar NKG
Hlýtur Steinþór Hauksson, 6. bekk Grunnskóla Hornafjarðar, með hugmyndina Lærum íslensku – aðstoðar fólk við að nota gömul, upprunaleg íslensk orð og frumlega íslensku.
Steinþór hlýtur í verðlaun 20.000 kr. gjafabréf í ELKO og viðurkenningarskjal, undirritað af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennari: Guðjón Magnússon
Tæknibikar Pauls Jóhannssonar
Hljóta Harpa Jakobsdóttir og Helgi Valur Jónsson, 7. bekk Kerhólsskóla, með hugmyndina Incredabúr – fyrir öryggi hunda í tilfellum bílveltna og ofhitnunar.
Þau hljóta í verðlaun 20.000 kr. gjafabréf í ELKO og viðurkenningarskjal, undirritað af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennari: Anna Katrín Þórarinsdóttir
Umhverfisbikar NKG og ELKO
Hljóta Indra Styrmisdóttir og Kría Valgerður Vignisdóttir, 5. bekk Vesturbæjarskóla, með hugmyndina Endurnýtum hluti – forrit sem tekur mynd af hlut og gefur hugmyndir að nýtingu hans á ný.
Þær hljóta í verðlaun 20.000 kr. gjafabréf í ELKO og viðurkenningarskjal, undirritað af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennari: Linda Sverrisdóttir
Aðalverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2025
Hlýtur Snjólfur Atli Hákonarson, 6. bekk Árskóla, með hugmyndina Sólarmjalta – mjaltavél sem ber jafnframt sólarvörn á júgur.
Snjólfur hlýtur í verðlaun 50.000 kr. gjafabréf í ELKO og viðurkenningarskjal, undirritað af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Kennarar: Katrín Ingólfsdóttir og Sigríður Heiða Bjarkadóttir
Vilji – Hvatningarverðlaun kennara NKG og Samtaka iðnaðarins
Hljóta Ása Gunnlaugsdóttir og Bryngeir Valdimarsson, kennarar við Ölduselsskóla.
Með verðlaununum fylgdi 150.000 kr. peningaupphæð, veitt með stuðningi Samtaka iðnaðarins, sem vilja með því styðja við öfluga nýsköpunarmenntun í grunnskólum.
Skólastjóri Ölduselsskóla: Erla Erlendsdóttir
Dómarar – Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2025
Ásdís Kristmundsdóttir – Hugverkastofan
Hannes Páll Þórðarson – Háskólinn í Reykjavík (RU)
Hanna Ólafsdóttir – Háskóli Íslands (HI)
Hannes Ottósson – Háskóli Íslands (HI)
Oddur Sturluson – Háskóli Íslands (HI)
Arinbjörn Hauksson – ELKO
Úlfur Atlason – Háskólinn í Reykjavík (RU)
Dómarar – Vilji, hvatningarverðlaun kennara 2025
Hannes Ottósson – Háskóli Íslands (HI)
Tryggvi Brian Thayer – Háskóli Íslands (HI)
Svanborg Rannveig Jónsdóttir – Háskóli Íslands (HI)
Hulda B. Kjærnested Baldursdóttir – Samtök iðnaðarins