Frá hugmynd að frumgerð – vinnustofur NKG 2025
Dagana 22.–23. maí hittust ungir hugmyndasmiðir á háskólasvæðinu til að þróa og móta nýsköpunarverkefni sín. Með aðstoð kennara, háskólanema og sérfræðinga fengu þau að prófa, byggja, forrita og kynna hugmyndir sínar – og allt í anda sköpunar, leikgleði og þrautseigju.