Lokahóf NKG 2025 – gleði, hugmyndaflug og verðlaun
Laugardaginn 24. maí var haldið glæsilegt lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2025 á Háskólatorgi Háskóla Íslands. Þar komu saman nemendur, foreldrar, kennarar, rektor Háskóla Íslands, mennta- og barnamálaráðherra og fleiri gestir til að fagna árangri, frumleika og sköpunarkrafti ungu hugmyndasmiðanna. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessari eftirminnilegu stund.