Við erum stolt að segja frá því að Landakotsskóli, Tjarnaskóli, Háaleitisskóli í Ásbrú Reykjanesbæ og Ölduselsskóli taka þátt í prufu rennsli Ljónagryfjunnar í vor.
Ljónagryfjan er nýtt þróunarverkefni innan NKG+ – Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir 8.–10. bekk. Þar þróa nemendur hugmyndir sínar áfram, vinna með frumgerðir og vörumerki og kynna lausnir sínar með krafti og sannfæringu.
Þetta er upphafið að spennandi vegferð NKG+ fyrir unglingastigið á Íslandi.
Kærar þakkir til skólanna fyrir frumkvæði og samstarf – þetta verður spennandi!



