Aftur bíða stórglæsileg verðlaun sigurvegara NKG – Heildarverðmæti vinninga, allt að 2.8 milljónum.

  

Aðalverðlaun NKG 2016, eru í boði Myndaniðurstaða fyrir elko

Styrktarsjóður ELKO styrkir 2x verkefni á ári sem tengjast velferð barna og ungmenna. Raftæki, búnaður eða styrkir sem efla menntun, nýsköpun eða annað sem nýtist til betra lífs fyrir ungt fólk, fellur vel til styrkja.

Því hefur sjóðurinn aftur valið að styrkja Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna 2017 með stolti og óska þau öllum velfarnaðar í keppninni og hlakka til að sjá árangurinn.

Við þökkum ELKO kærlega fyrir þennan frábæra stuðning.

Veitt eru verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sætið í öllum aldurshópunum þremur, þ.e. 5. 6. og 7. bekk .  Ef 2 nemendur eru saman um hugmyndina, þurfa þau ekki að hafa áhyggjur af því að þurfa að skipta verðlaununum, –  þau fá sitthvorn vinninginn, – allt í boði ELKO.

1. verðlaun: Lenovo Yoga fartölva að verðmæti 130 þús*

2.verðlaun: Samsung snjallsími  að verðmæti 60 þús*

Samsung Galaxy A5 (2017) snjallsími - Gylltur

 3.verðlaun: Samsung spjaldtölva að verðmæti 30 þús*

Samsung Galaxy Tab A 10,1 WiFi (Svört)

*eða sambærileg vara, – fer lagerstöðu

 Aukaverðlaun

Ekki siðri eru aukaverðlaun NKG:

FabLab ferð

FabLab smiðja Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum, – verðmæti allt að 40.000 kr.

Um 10 aukaverðlaunahöfum býðst glæsileg vinnu- og skemmtiferð til Vestmannaeyja, í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Innifalið: Miði í Herjólf, gisting(1. nótt), uppihald og 2 daga skapandi og skemmtileg vinnusmiðja í Fablab Vestmannaeyjum.

Við þökkum einnig Nýsköpunarmiðstöð Íslands kærlega fyrir þennan frábæra stuðning.

Háskóli unga fólksins

10 aukaverðlaunahafar fá gjafabréf, að verðmæti 20.000 kr. í Háskóla unga fólksins fyrir stigahæstu hugmyndirnar. Vefsíða http://ung.hi.is/

Gjafabréfið gildir fyrir sumarið 2018 og geta verðlaunahafar valið um fjölmörg spennandi námskeið um flest allt milli himins og jarðar. Háskóla unga fólksins er opinn fyrir 12 til 16 ára grunnskólanema og skráning hefst í maí.

IKEA

IKEA er meira en hagnýt hönnun því fyrirtækið tekur samfélagslega ábyrgð sína alvarlega og axlar hana með margvíslegum stuðningi við málefni sem snerta börn og menningu í víðtækum skilningi.

IKEA gefur 10 inneignarkort að upphæð 15.000 kr. hvert.

IKEA logo