
Nýsköpunarkennsla í þágu sköpunar, úthalds og þrautseigju
Kennarateymið Ása Gunnlaugsdóttir og Bryngeir Valdimarsson í Ölduselsskóla hlutu VILJA – Hvatningarverðlaun grunnskólakennara í nýsköpunarkennslu 2025. Ása og Bryngeir hafa byggt markvisst upp nýsköpunarkennslu fyrir nemendur á mið- og efsta stigi, þar sem áhersla er lögð á hönnunarhugsun, lausnaleit og sjálfstæða vinnu með eigin hugmyndir.
Verkefnin, sem fara fram í vel útbúnu umhverfi snillismiðju og smíðastofu skólans, hvetja nemendur til að hugsa gagnrýnið, vinna frumgerðir og prófa sig áfram – þar sem mistök eru hluti af ferlinu og uppspretta lærdóms. Slík nálgun styrkir sjálfstraust, sköpunarhæfni og samfélagslega ábyrgð nemenda.
Við óskum Ásu og Bryngeiri innilega til hamingju með verðlaunin og fögnum því kraftmikla og faglega skólastarfi sem á sér stað í Breiðholti.
Með verðlaununum fylgdi 150.000 króna peningaupphæð, veitt með stuðningi Samtaka iðnaðarins, sem vilja með því styðja við öfluga nýsköpunarmenntun í grunnskólum.