Búið er að velja í vinnustofu NKG 2022, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku.  Dómnefndina skipa: 

  • Svala Jónsdóttir, aðjunkt í listgreinakennslu í Háskóla Íslands,

  • Árni Halldórsson og  Sif Steingrímsdóttir hjá Hugverkastofu,

  • Hannes Páll Þórðarson, umsjónarmaður rafeindaverkstæðis og Gísli Freyr Þorsteinsson, umsjónarmaður vélaverkstæðis í Háskólanum í Reykjavík og

  • Úlfur Atlason, verkefnastjóri hjá SKEMA í Háskólanum í Reykjavík.       

  • Eyjólfur B. Eyjólfsson, verkefnisstjóri NKG sér um utanumhald dómnefndarstarfa.

Eins og alltaf var ekki auðvelt að skera niður úr öllum þeim mikla fjölda hugmynda sem bárust, – það er hreint með ólíkindum hvað þessir ungu nemendur geta galdrað fram flottar hugmyndir. 

Við viljum þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna og biðjum kennara að skila kærri kveðju til allra þeirra nemenda sem tóku þátt. Endilega látið þau vita að þó þau hafi ekki komist á vinnustofuna, þýðir það ekki að hugmynd þeirra hafi ekki verið góð heldur er það bara eins og alltaf, þá komast því miður bara hámark 25 hugmyndir að, á vinnustofuna. HÉR er viðurkenningarskjal, sem þið megið gjarnan prenta út og láta krakkana fá(eða hengja upp í stofunni). 

Hér er listinn yfir hugmyndirnar sem komust áfram. Látið vita ef þið sjáið einhverjar villur, á ey@hi.is. (fyrir neðan er uppkast að dagskrá vinnustofu):  

 

 

 

Hugmynd Nafn nemenda Nafn hópfélaga Kennari Skóli bekkur
AðstoðarAppið Ari Líndal og Samúel Kristian Kristiansen Arna Björk Gunnarsdóttir Vesturbæjarskóli 6
Lýsing: Uppskrifta-app fyrir daglegt líf
Bangsaloppan.  Agla Styrmisdóttir Sigrún Baldursdóttir Melaskóli 6
Lýsing: Bangsi með innbyggðu teppi fyrir ungabörn
EfnisBangsi Úlfhildur Inga O. Gautsdóttir Sinead McCarron Landkotsskóli 7
Lýsing: Box með endurnýttu efni, til að búa til bangsa
Fóðurskammtari Agnes Katla Kristjánsdóttir Elín Sigríður Arnórsdóttir Brúarásskóli 5
Lýsing: Hugmyndin  virkar þannig að þegar (í þessu tilfelli) hænan stígur á flipann þá rennur kornið í matskálina í sirka 4 sek.
Fuglamatari Alda Sif Jónsdóttir Eiríkur Már Hansson Seljaskóli 7
Lýsing: Timastilltur matarkassi fyrir fugla
HitaSkóHilla Hjalti Árnason og Hilmir Öxndal Ingibjörnsson Kristin Erla Ingimarsdóttir Flúðaskóli 7
Lýsing: Ofn sem er einnig skóhilla
Hjálpar ljós Hilda Rún Hafsteinsdóttir og Thelma Sif Róbertsdóttir Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir Sandgerðisskóli 7
Lýsing: Hjálparljósið er ljós á litum platta, á plattanum er takki sem kveikir á ljósinu.
LBHA LesBlinduHjálparAppið Sigurbjörg Inga Sigfúsdóttir og Sigurbjörg Svandís Guttormsdóttir Unnur Sveinbjörnsdóttir Varmahlíðarskóli 6
Lýsing: App sem hjálpar lesblindum að lesa og skrifa
Lífið er stutt Alexandra Vilborg Thompson Maríanna J. Maríudóttir Urriðaholtsskóli 5
Lýsing: Ef þig langar að fá eina áskorun á dag í 365 daga þá notar þú þetta app!
Local Iceland Elín Sóley Finnsdóttir og Erla Ingimundardóttir Kristín Sesselja Kristinsdóttir Heiðarskóli 7
Lýsing: Okkur langar til þess að búi til app sem að fær fleiri ferðamenn til Reykjanesbæjar og fleiri bæja.
Lýsandi úlpa Anna Heiða og Sveindís og Helga Ásta Sigríður Ólafsdóttir Víðistaðaskóli 7
Lýsing: Úlpa með ljósum
Málningar SprautuBursti Guðmundur Hrafn Gunnarsson og Ólafur Hrafn Ólafsson Arna Björk Gunnarsdóttir Vesturbæjarskóli 5
Lýsing: Málningarbursti með málningu í handfanginu
Muna-men Bryndís Björk Hólmarsdóttir Guðjón Magnússon Grunnskóli Hornafjarðar 5
Lýsing: Hálsmenið pípir ef þú ert of langt frá hlutunum/gleymir hlutunum.
Naglapláss Einar Ingi Jóhannsson og Andri Ólafsson Ásta Sigríður Ólafsdóttir Víðistaðaskóli 7
Lýsing: Hamar með pláss fyrir nagla
Náttborð sem lýsir Sara Dís Ingólfsdóttir Sæbjörg Erla Árnadóttir Urriðaholtsskóli 6
Lýsing: Náttborð sem er með bluetooth og borðið lýsir með tónlistinni eða bara velja lita. Langar líka að setja eitthvað á borðið með hleðslubatterí fyrir t.d. snjallúr, síma og fleira.
Peysuteppi Fríður París Kristjánsdóttir Sigrún Baldursdóttir Melaskóli 6
Lýsing: Peysa sem hægt er að breyta í teppi
Plöntu Bíbari Rakel Kara Ragnarsdóttir Sæbjörg Erla Árnadóttir Urriðaholtsskóli 6
Lýsing: Blómapottur sem bíbar þegar þarf að vökva plöntuna. Liturinn á ljósinu breytist eftir hvað þau þurfa.
Skemmtilegar Biðstofur Ólöf Stefanía Hallbjörnsdóttir og Fríða Lovísa Daðadóttir Sinead McCarron Landkotsskóli 7
Lýsing: Krakkar og unglingar taka þátt í hönnun opinberra biðstofa
Smart brúsi Viktor Jens Gunnarsson og Natan Dagur Fjalarsson Lovísa Rut Stefánsdóttir Glerárskóli 7
Lýsing: Brúsi sem minnir mann á a drekka nóg
Sólhúfa Axel Freyr Þorkelsson Telma Ýr Birgisdóttir Smáraskóli 6
Lýsing: Húfa með innbyggðu sólgleraugnaplasti, sem hægt er að draga niður
SparkvallarKort Sölvi Þór Atlason Björg Gunnarsdóttir Smáraskóli 7
Lýsing: App sem sýnir leikvelli í nágrenninu
Styrktarappið Birta Hall Arna Björk Gunnarsdóttir Vesturbæjarskóli 6
Lýsing: Öll styrktar- og góðgerðarfélög á einum stað í appi (vefsíðu).
Styrktarkort Erna Þórey Jónsdóttir Signý Traustadóttir Borgaskóli 7
Lýsing: Afsláttarkort fyrir efnalítið fólk
Táknmálatækið Þóra Guðmundsdóttir Valdís Sigurvinsdóttir Grundaskóli 6
Lýsing: App sem þýðir talað mál yfir á táknmál
TölvuMúsarPallur Arnór Dagur Árnason og Styrmir Týr Árnason Kristbjörg Sveinsdóttir Brekkubæjarskóli 6
Lýsing: Hægt er að tosa út, litla músarmottu, undan tölvunni

Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 19. og 20. maí næstkomandi og lokahófið á laug. 21. Hér er uppkast en dagskráin verður uppfærð fljótlega