Þá hefur dómnefnd lokið störfum, í bili. Mörg hundruð hugmyndir bárust víðs vegar af landinu – en eins og alltaf, þá komast því miður ekki allir að og búið er að velja 24 hugmyndir í úrslitin, þ.e. vinnustofuna sem haldin verður dagana 31. og 31. Maí.

Dómnefndina skipa:

  • Ásdís Kristmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Hugverkastofu
  • Finnur Jens Númason, Aðjunkt við list- og verkgreinadeild Menntavísindasviðs HÍ
  • Hanna Ólafsdóttir, Lektor á Menntavísindasvið HÍ – Deild faggreinakennslu
  • Hannes Ottósson, lektor á sviði samfélagslegrar nýsköpunar á Menntavísindasvið HÍ
  • Hannes Páll Þórðarson, umsjónarmaður rafeindaverkstæðis í Háskóla Reykjavíkur
  • Oddur Sturluson, Verkefnisstjóri á Vísinda- og nýsköpunarsviði HÍ
  • Úlfur Atlason, verkefnastjóri Skema
Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir þátttökuna og biðjum ykkar að skila kærri kveðju til allra þeirra nemenda sem tóku þátt. Skilið einnig til allra að þó hugmynd þeirra hafi ekki verið valin nú, þýðir það alls ekki að hugmyndin hafi ekki verið góð – það komast bara ekki allar að.

 Við vinnum betur úr þessu á næstu dögum og setjum nánari uppl. á heimasíðuna. Þá koma nöfn barnanna fram og hægt verður að nánar um hugmyndina.

 

Hér að neðan þær hugmyndir sem valdar voru – til hamingju öll sem komu að þeim og þakkir til ykkar allra sem tóku þátt:

 

Blautrusl

Grandaskóli

Fyrir blautan matarafgang – vökvinn safnast fyrir í neðri íláti

Blómaklukkan

Háteigsskóli

Til að krakka læri samhliða á stafræna og venjulega klukku

Boltavélin

Vesturbæjarskóli

Kassavél sem hendir bolta fyrir hundinn

Bókaklukka

Grunnskóli Hornafjarðar

Bókamerki með ljósi og klukku(sem sýnir hvað búið er að lesa lengi)

ColourCreator 1

Grunnskóli Hornafjarðar

Penni með grunnlitina 3. Hægt að stilla og blanda saman litum til búa til allskonar liti

Diskí

Urriðaholtsskóli

Mottan er með áföstum disk og festist vel við borð.

Find it

Landakotsskóli

App til að hafa að gera eitthvað úti. Átt að leita að allskonar hlutum og færð stig fyrir

Fjölskylduhjálpin

Grandaskóli

App sem aðstoðar og svarar spurningum, fyrir foreldra, unglinga og börn

Flokkarinn

Varmahlíðarskóli

App sem hjálpar fólki við að flokka rusl

Foreldraappið Blær

Landakotsskóli

App sem hjálpar foreldrum með uppeldið. Svarar spurningum og gefur góð ráð

Kabúmm (Spilið fyrir sjónskerta og blinda)

Snælandsskóli

Spil með blindraletri

LabbaKort

Melaskóli

T.d. gamalt og fatlað fólk, getur skannað kort til að fá lengri tíma á grænu ljósi

Minni

Varmahlíðarskóli

App til að minna mann á að gera eitthvað fyrir aðra, sem eru t.d. með ADHD, eru gleymnir etc.

Nammihús

Melaskóli

App fyrir Hrekkjavökuna. Fólk sem gefur nammi skráir sig. Merkir við þegar nammið er búið.

Orðaskrifa

Vesturbæjarskóli

Appið leiðréttir skrifaðan texta

PelaRó

Árskóli

Mjúkur pelahaldari, sem spilar lög og er með ljósum

Pössun

Vesturbæjarskóli

App til að fá pössun fyrir dýrin, vökvun á blómum osfrv. þegar maður er á ferðalagi

Rafmagnsuppþvottaburstinn

Víðistaðaskóli

Uppþvottabursti með batteríum og haus sem snýst í hringi og hjálpar þér að skrúbba vel af leirtauinu.

Sami hlutur – minni peningur

Árskóli

reikna út og sýnir hvar ódýrasti innkaupalistinn er

Spilaheimur

Vesturbæjarskóli

App með spilareglum fyrir allskonar spil

Teiknaðu 101%

Háteigsskóli

Hjálpa manni við að teikna, skref fyrir skref

TTS: The Shopping Scrunch

Snælandsskóli

Hárteygja með fjölnota poka inn í

Útifataappið

Árskóli

Sýnir krökkum hvernig þau eiga að klæða sig, skv. veðrinu

Vatnaburstinn

Víðistaðaskóli

Hárbursti sem hægt er að tengja við barkann í sturtunni (sturtuhausinn). Vatnið rennur í gegnum burstann. Hægt að hafa nudd.