Þá hefur verið valið í vinnustofu NKG, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku. Hana skipa:
- Ásdís Kristmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Einkaleyfastofu
- Birna Rún Gísladóttir, sérfræðingur á þróunar- og markaðssviði Arion banka
- Sirrý Sæmundsdóttir, hópstjóri innanhússhönnuða hjá IKEA
- Hildur Sif Arnardóttir, upplýsingafulltrúi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Eyjólfur Brynjar Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Yfir 1100 hugmyndir, frá 33 skólum víðsvegar af landinu, bárust að þessu sinni .
Var mikið verk og vandasamt var að velja 25 hugmyndir, úr þessum flotta hópi hugmyndaríkra grunnskólabarna sem komu fram með ótal frábærar hugmyndir, sem tengjast öllu milli himins og jarðar. Greinilegt er að það eru virkilega flott og skapandi fólk sem mun erfa landið.
En, – því miður þá komast ekki allir að og því þurfti að velja hugmyndir í úrslitin, – hér kemur listi yfir þátttakendur í vinnustofunni. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga:
Hugmynd | Lýsing á hugmynd | Nafn nemenda | Nafn hópfélaga | Skóli | Bekkur |
Afgangur af mat | Miðstöð sem tekur við og útdeilir mat til fátækra |
Bergvin Logi Ingason | Hofstaðaskóli | 6 | |
Applocker | Forrit sem foreldrar nota til að stýra tímanum sem krakkar eru í tölvuleikjum(farsímar, spjaldtölvur) |
Anna Lilja Lárusdóttir | Brekkubæjarskóli | 7 | |
Barnabjargari | Handfangið á barnavagninum skynjar hvort hendur séu á honum. Læsir dekkjunum ef svo er ekki. |
Þóra Emelía Ólafsdóttir | Lilja Diljá Ómarsdóttir | Varmahlíðarskóli | 7 |
Betri einkunnir | Forrit sem hjálpar þér við heimalærdóminn. |
Magnhildur Marín Erlingsdóttir | Silja Hrönn Sverrisdóttir | Egilsstaðaskóli | 7 |
Diskapör | Diskur með hólfi sem geymir hnífapörin |
Anna Katrín Víðisdóttir | Anna María Magnúsdóttir B. | Flúðaskóli | 7 |
Einföld Markatöng | Markatöng sem hægt er að festa fleiri gerðir af mörkum á. Þarf því barta að klípa í eyrað einu sinni, í stað 2-4 sinnum. |
Indriði Ægir Þórarinsson | Óskar Aron Stefánsson | Varmahlíðarskóli | 7 |
Ferðabursti | Hárbursti með hólf fyrir snyrtivörur, hárteygjur osfrv. |
Una Karen Guðmundsdóttir | Árskóli | 5 | |
Handarvasaljós | Lítið (vasa)ljós, sem fest er á vettlinga |
Sindri Snær Ægisson | Árskóli | 5 | |
Hitaskynjari fyrir krana | Lítill hitamælir/skynjari sem festur er á kranann. |
Hjálmar Þór Helgason | Brúarskóli – Vesturhlíð | 6 | |
Hitchhiker guide to Iceland | Forrit sem hjálpar fólki við að fá far hjá öðrum eða boðið öðrum far |
Kristín Hanna Guðmundsdóttir | Davíð Fannar Guðmundsson | Vallaskóli | 6 |
Hljóð ól | Ef maður tínir hundinum sínum, getur maður kveikt á hljóði(frá farsíma) sem hundirnn þekkir sem merki til að koma til þín. |
Viktoría Ír Arnarsdóttir | Heiba Yanet Echegaray | Rimaskóli | 7 |
Hlutverkaapp | Forrit sem sýnir hlutverkaskiptingu fjölskyldumeðlima. |
Eva Bjarkey Þorsteinsdóttir | Hofstaðaskóli | 7 | |
Hundasjampógreiða | Hundabursti með innbyggðu hólfi fyrir sjampó. |
Emilía Stefanía Erlendsdóttir | Seljaskóli | 5 | |
Klemmusnagi | Snagi með teygju á, sem “lokar” fötin á snaganum, svo þau detta ekki niður |
Arna Sól Orradóttir | Seljaskóli | 5 | |
Kútasundbolur | Sundbolur með innsaumuðum kút, sem hægt er að blása upp. |
Emma Sól Rögnvaldsdóttir | Seljaskóli | 5 | |
Lásahjólagrindin | Hjólgrind með innbyggði læsingu. Grindin lokast þegar hjól er sett inn í hana. |
Alexander Arnarsson | Sæmundarskóli | 6 | |
Lyklaklemma | Klemma/lykklakippa sem stækkar átakssvæðið fyrir lykilinn(auðveldar börnum að opna dyrnar) |
Óskar Aron Stefánsson | Indriði Ægir Þórarinsson | Varmahlíðarskóli | 5 |
Morgunmatarskálin | Tvískipt skál/diskur. Einn helmingur fyrir mjólk, hinn fyrir morgunkornið. |
Aron Kristian Jónasson | Sjálandsskóli | 5 | |
Skartgripamappan | Bókarmappa til að geyma skartgripina |
Fríða Rún Eiríksdóttir | Þórkatla Loftsdóttir | Þjórsárskóli | 5 |
Sögubangsi | Bangsi sem hægt er að setja upptökutæki(snjallsíma) inn í. Hægt að “spila” sögur osfrv. |
Dísella Einarsdóttir | Sara Rún Sævarsdóttir | Árskóli | 5 |
Töfluþrífari | Töfluþrífari, með innbyggðu vatnspreyi |
Vaka Líf Kristinsdóttir | Brynja Dröfn Ásgeirsdóttir | Seljaskóli | 7 |
Útifataappið | Forrit sem segir þér í hvernig föt krakkar eiga að fara í, eftir veðri |
Dagný Erla Gunnarsdóttir | Egilsstaðaskóli | 7 | |
Vatnshreinsistöð | Tveir tankar, sem nýta sólarljósið til að hreinsa vatn. |
Viktor Noesgaard Ólafsson | Seljaskóli | 7 | |
Vettlingaþurrkugrind | Grind, með mörgum krókum, sem hengd er á ofna. Mikið auka pláss fyrir vettlinga osfrv. |
Ásdís Einarsdóttir | Baldvin Einarsson | Öxarfjarðarskóli | 7 |
Vindur | Vindknúið hleðslutæki fyrir snjallsíma |
Ylfa Sól Þorsteinsdóttir | Foldaskóli | 6 |
Boðskort og dagskrá vinnustofu hefur verið sent út til forráðamanna og umsjónarkennara nemendanna. Í þó nokkrum tilfellum, vantaði þó netföng á umsóknunum, svo þó nokkrir hafa líklega ekki fengið boðskort, – endilega ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið barn ykkar hér á listanum eða einhverjar spurningar vakna.
Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 18. og 19. maí næstkomandi. Undanfarin ár hefir lokahófið sjálft verið haldið á sunnudeginum á eftir, en unnið er nú að því, að reyna að halda það strax á laugardeginum. Er það gert til að þau börn, sem koma utan af landi, þurfi ekki útvega sér gistingu, lengur en þörf er á, í bænum. Nánari dagskrá vinnustofunnar, kemur upp á allra næstu dögum.