Því miður náðum við ekki að halda vinnustofu Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í ár. Margt sem spilaði þar inn í en þó aðallega að Uppstigningardagur og Hvítasunnan útiloka tvær vinnustofur(þær eru haldnar frá fös. til lau.), 25-27 maí gekk ekki upp, hvorki fyrir HR né okkur, sökum prófatímabils, skörun við aðra viðburði ofl. Það hefur reyndar verið mikið púsluspil að ná að halda vinnustofuna í maí og var kannski bara tímaspursmál hvenær við næðum ekki að halda hana. Stefnum á, í samráði við kennara, að halda vinnustofurnar, eftirleiðis í byrjun júní.
Við munum þó veita verðlaun eins og alltaf (viðurkenningarskjöl, pening og bikar verður fyrir aðalverðlaunin) fyrir flesta eða alla flokka og styðjumst einfaldlega við innkomnar umsóknir við valið. Við gerðum þetta í Covid, það gekk vel svo við höfum fína reynslu af þessu. Við völdum líka þær 25 hugmyndir sem hefðu verið valdar á vinnustofuna, þ.e. topp 25 úrslitahugmyndir, og fá nemendur þeirra viðurkenningarskjöl, undirritað af ráðherra þess efnis.
Dómnefnd í ár skipuðu:
- Arinbjörn Hauksson, Markaðsstjóri ELKO
- Ásdís Kristmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Hugverkastofu
- Hanna Ólafsdóttir, Lektor á Menntavísindasvið HÍ – Deild faggreinakennslu
- Hannes Páll Þórðarson, umsjónarmaður rafeindaverkstæðis í Háskóla Reykjavíkur
- Úlfur Atlason, verkefnastjóri Skema
Mörg hundruð frábærra hugmynda bárust og var, eins og alltaf, ekki auðvelt að velja einungis 25 hugmyndir
Við viljum þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna og biðjum kennara að skila kærri kveðju til allra þeirra nemenda sem tóku þátt. Endilega látið þau vita að þó þau hafi ekki komist á vinnustofuna, þýðir það ekki að hugmynd þeirra hafi ekki verið góð heldur er það bara eins og alltaf, þá komast því miður bara hámark 25 hugmyndir að, á vinnustofuna. Á allra næstu dögum verður svo tilkynnt um sigurvegara í flokkum NKG 2023.
Hér er listinn yfir hugmyndirnar sem komust áfram. Hægt er að sjá nánar um hugmyndirnar með því að klikka á nafn hugmyndanna. Látið vita ef þið sjáið einhverjar villur, á ey@hi.is.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2023 – topp 25 úrslitahugmyndir | ||||||
Hugmynd | Nafn nemenda | Nafn hópfélaga | Kennari | Skóli | bekkur | |
Aðstoðarappið | Lilja Bergrós Kristjánsdóttir | og | Steinunn Elísa Hauf Eydal | Ásta S Ólafsdóttir | Víðistaðaskóli | 7 |
Lýsing: | App þar sem að fólk sem vill aðstoða með hvað sem er getur skráð sig og þeim sem vantar aðstoð geta leitað til þeirra. | |||||
Artplex | Ásdís Elísa Jónsdóttir | og | Antonía Elísabet Ólafsdóttir | Berglind Elva Gunnlaugsdóttir | Djúpavogsskóli | 6 |
Lýsing: | Verkfærakassi fyrir listamenn | |||||
Asthmair | Guðrún Gunnarsdóttir | og | Júlía Oliwia Zarxycka | Fríða Björk Ólafsdóttir | Hlíðarskóli | 7 |
Lýsing: | Asthmair sem er endurnýtanlegt púst sem maður kaupir nýtt hylki í þegar hylkið manns er búið. | |||||
Auto klósettsetulokari 9000 | Arnór Atli Pálsson | og | Daníel Már Ólafsson | Kristín Brynja Gunnarsdóttir | Patrekesskóli | 6 |
Lýsing: | Ef enginn er á klósettinu, þá lokast setan sjálfkrafa | |||||
Áfram umhverfið | Lilja Bergrós Kristjánsdóttir | og | Steinunn Elísa Hauf Eydal | Ásta S Ólafsdóttir | Víðistaðaskóli | 7 |
Lýsing: | Appið hjálpar okkur að hugsa betur um umhverfið. | |||||
Blýantsljós | Björg Ákadóttir | Dagur Emilsson | Grandaskóli | 6 | ||
Lýsing: | Blýantur með litlu ljósi framan á | |||||
Cubes | Þorsteinn Axelsson | Andri Snær Þorvaldsson | Brúarskóli – Vesturhlíð | 6 | ||
Lýsing: | Borðspil fyrir 2 leikmenn. Takmarkið er að losa sig við alla kubbana | |||||
Eineltispeysan | Aurora Sólrós Servo | og | Embla Fönn Freysdóttir | Silja Kristjánsdóttir og Guðrún Dóra Jónsdóttir | Sjálandsskóli | 7 |
Lýsing: | Peysan sýnir að þú styður ekki einelti. Skólar geta tekið þátt í átaki og merkt peysunar sínum skóla | |||||
Eldrei aftur | Hugrún Birna Gunnarsdóttir | og | Lára Hlín Þorsteinsdóttir | Jónína Klara Pétursdóttir | Urriðaholtsskóli | 7 |
Lýsing: | Hugmyndirn virkar þannig að hún skannar hitann á eldavélinni og pípar hátt ef gleymt er að slökkva á henni. | |||||
Fyrsta foreldrið | Tinna Björg Brynjarsdóttir | og | Ólöf Helga Ólafsdóttir | Unnur Sveinbjörnsdóttir | Varmahlíðarskóli | 7 |
Lýsing: | Forrit til að hjálpa fyrstu foreldrum við allskonar barnamál | |||||
Heilakóðari | Guðmundur Ásgeir Ingólfsson | Sinéad McCarron | Landakotsskóli | 6 | ||
Lýsing: | forrit til um hvernig á að læra stærðfræði eða læra tungumál með því að nota forritun. Líka ávinningur af leik þar sem þú færð verðlaun og stig. | |||||
Heilsuappið | Sara Dís Ingólfsdóttir | og | Katla Lena Ólafsdóttir | Jónína Klara Pétursdóttir | Urriðaholtsskóli | 7 |
Lýsing: | Appið fylgist með því hvort þú ert búin að taka lyfin þín og sendir þér tilkynningar um að muna að taka lyfin, drekka vatn ofl. sem tengist heislunni | |||||
I-read | Selma Rún Arnarsdóttir | Sinéad McCarron | Landakotsskóli | 6 | ||
Lýsing: | Hugmyndin er raddgreiningarapp sem hlustar á þig lesa upphátt og getur leiðrétt þig. | |||||
Íslandsappið | Ísabella Jónsdóttir | Kristín Sesselja Kristinsdóttir | Heiðarskóli | 5 | ||
Lýsing: | Maður hefur app í símanum til að auðvelda ferðalög um Ísland. | |||||
Lumos sprotinn | Sigríður Ísold Jökulsdóttir | Ásta S Ólafsdóttir | Víðistaðaskóli | 6 | ||
Lýsing: | Ljóssproti með lítilli bjartri peru sem maður hristir til að kveikja ljósið. Settur í stand til hleðslu. Auðvelt að taka með sér td ef maður vaknar á nóttunni og þarf að fara á klósettið. | |||||
MorgunKornarBrúsi | Kristján Gíslason Molphy | Arna Björk H. Gunnarsdóttir | Vesturbæjarskóli | 5 | ||
Lýsing: | Nestisbox með 2 hólfum. 1 fyrir mjólk og hitt fyrir morgunkornið | |||||
Náttúrudróni | Trausti Hrafn Björnsson | Silja Kristjánsdóttir og Guðrún Dóra Jónsdóttir | Sjálandsskóli | 7 | ||
Lýsing: | Dróni sem skannar umhverfið og tínur upp smárusl | |||||
Pattur | Davíð Antti Liljar Geirsson | og | Andri Viðar Arnarson | Friðrika Ýr Einarsdóttir | Brekkubæjarskóli | 6 |
Lýsing: | Þetta er panna sem maður getur breytt í pott með því að lyfta upp hliðunum | |||||
Peran | Benedikt Friðriksson | og | Þorbergur Orri Halldórsson | Sigrún Baldursdóttir og Sveinn Bjarki Tómasson | Melaskóli | 6 |
Lýsing: | Ljósastaurar eru með ljósaperu sem skiptir um lit eftir hitastigi úti til að hjálpa börnum að klæða sig rétt eftir veðri. | |||||
Spilum og lærum! | Kári Tuvia Ruebner Kjartansson | og | Jósef Ómarsson | Sinéad McCarron | Landakotsskóli | 6 |
Lýsing: | spil sem getur hjálpað krökkum sem eru að flýja úr öðru landi (flóttamenn) og krökkum sem eru að flytja til Íslands til að læra Íslensku sem annað tungumál. | |||||
Stólar eða Borð? | Bríet Jökla Ólafsdóttir | Silja Kristjánsdóttir og Guðrún Dóra Jónsdóttir | Sjálandsskóli | 6 | ||
Lýsing: | Kubbur sem inniheldur 4 stóla og borð. Hægt að taka stólana úr úr kubbnum | |||||
Strekkjanlegur hjólalás | Bragi Styrmisson | og | Hafliði Njarðarson | Arna Björk H. Gunnarsdóttir | Vesturbæjarskóli | 6 |
Lýsing: | Hjólalás sem hægt er að strekkja | |||||
Ultimo | Jóhanna María Grétarsdóttir Noack | Katrin Ingólfsdóttir | Árskóli | 6 | ||
Lýsing: | Ultimo er bæði hlutur og app. Appið skannar matinn og hvenær hann rennur út. Þá sendir appið skilaboð á skjáinn sem er t.d. fest við kæli. | |||||
Uppblásið mark | Sunneva Sigríður Andradóttir | Flóra Guðlaugsdóttir | Háteigsskóli | 5 | ||
Lýsing: | Uppblásanlegt mark sem auðvelt er að pakka saman og setja upp hvar sem er | |||||
Öðruvísi tíska | Bragi Sumarliði M. Eliassen | Sinéad McCarron | Landakotsskóli | 6 | ||
Lýsing: | Kynlaus tískulínu. |