Sigurður Brynjarsson í 6. bekk Grundaskóla, er sigurvegari NKG 2020 með hugmynd sína Með okkar augum. Það er forrit sem blindir geta hringt með, til að fá aðstoð frá sjálfboðaliðum, í gegnum myndavél símans. Hann hlýtur 50.000 kr. í verðlaun ásamt verðlaunabikar og viðurkenningarskjöl, undirrituð af Herra Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands og Lilju Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Íslands. Sigurður mun fá tækifæri til þess að þróa og vinna forritið áfram með aðstoð NKG og vonandi mun hugmyndin verða að veruleika – við leyfum ykkur að fylgjast með:)

Vegna samkomubanns var hvorki haldin vinnustofa né lokahóf en í staðinn var farið í heimsókn Grundaskóla. Þar tók Valdís Sigurvinsdóttir, kennari Sigurðar, á móti NKG og var hún með Sigurði við afhendingu verðlaunanna, í sal skólans, að viðstöddum nemendum og kennurum.

Valdís hefur unnið virkilega gott nýsköpunarstarf í skólanum og hefur hún komið upp frábærri tæknismiðju í skólanum, þar sem nemendur hafa aðgang að tölvum, FabLab tækjum ofl. og geta nemendur nýtt sér smiðjuna, þvert á önnur fög.

Frábær heimsókn, frábærir nemendur og frábær skóli – við óskum Sigurði innilega til hamingju með sigurinn:)

 Á mynd 1, f.v: Valdís Sigurvinsdóttir, Sigurður Brynjarsson og Eyjólfur Brynjar Eyjólfsson, verkefnastjóri NKG og NMÍ