Búið er að velja í vinnustofu NKG 2019, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku. Dómnefndina skipa:
- Dagný F. Jóhannsdóttir Lögfræðingur / Fagstjóri hjá Einkaleyfisstofunni
- Helena Jóhannsdóttir, innanhúshönnuður- og arkitekt hjá IKEA
- Hildur Arnadóttur, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Hjalti Harðarson, markaðssérfræðingur hjá Arion banka
- Hulda B. Baldursdóttir verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
- Svanborg R. Jónsdóttir, Dósent í listum og skapandi starfi, við Háskóla Íslands
- Eyjólfur B. Eyjólfsson, verkefnisstjóri NKG og hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sér um utanumhald dómnefndarstarfa.
Eins og alltaf var ekki auðvelt að skera niður úr öllum þeim mikla fjölda hugmynda sem bárust, – það er hreint með ólíkindum hvað þessir ungu nemendur geta galdrað fram flottar hugmyndir. En, – eins og alltaf, þá komast því miður ekki allir að og því þurfti að velja hugmyndir í úrslitin. Við viljum þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna og biðjum kennara að skila kærri kveðju til allra þeirra nemenda sem tóku þátt. HÉR er viðurkenningarskjal, sem þið megið gjarnan prenta út og láta krakkana fá(eða hengja upp í stofunni). Það er því miður allt of mikil fyrirhöfn að búa til viðurkenningaskjöl fyrir hvert og eitt barn, svo ég vona að þetta dugi.
Hér er listinn yfir hugmyndirnar sem komust áfram(fyrir neðan er uppkast að dagskrá vinnustofu):
Hugmynd | Nafn nemenda | Nafn hópfélaga | Kennari | Skóli | bekkur | |
Áfyllingurinn | Karitas Ingvadóttir | Arna Björk | Vesturbæjarskóli | 7 | ||
Lýsing: | Umhverfisvænt, minnka plastnotkun. Áfylliflöskur til að kaupa sjampó og hárnæringu / í búðum Næringaskammtari / Sjampóskammtari | |||||
Bátakútar | Grímur Chunkuo Ólafsson | Sigurður Kristján Nikulásson | Sunnulækjarskóli | 5 | ||
Lýsing: | Kútar sem bjarga bátum og fólki. Staðsett á 6 stöðum í kringum bátinn | |||||
Bílastoppari | Helena Huld Hafsteinsdóttir | og | Hekla Karlsdóttir Roth | Arna Björk | Vesturbæjarskóli | 7 |
Lýsing: | Bætt umferðaröryggi. Geisli sem kemur þegar rautt ljós kemur , ef bilar fara yfir á rauðu ljósi kemur viðvörunarhljóð / eða hlið kemur upp | |||||
Fuglaappið | Guðmundur Týr Haraldsson | Hulda Hrund | Árbæjarskóli | 5 | ||
Lýsing: | Fugla – appið , appið þekkir fugla, tekur mynd þá segir appið hvaða fugl þetta er. | |||||
Glansvaskur | Katla Huld Halldórsdóttir | og | Henný Katrín | Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir | Grunnskólinn austan Vatna | 5 |
Lýsing: | Uppþvottabursti með mótor, gerir uppvask skemmilegra, og auðveldar fólki að vaska upp | |||||
Gráturljós | Ester Sól Jónsdóttir | Sædís S. Arndal | Hofsstaðaskóli | 5 | ||
Lýsing: | Fyrir yngri kynslóðina, ljósið nemur þegar ungt barn fer að gráta og þá kveinkar ljós sem róar barnið | |||||
Hafragrautaruppáhellari | Anna Valgerður Árnadóttir | og | Oliwia Huba | María Kristín Óskarsdóttir | Brekkubæjarskóli | 6 |
Lýsing: | Tímastilltur pottur til að elda hafragraut. Sett er vatn í pottinn og hráefni, tíminn stilltur. Pottur fer svo af stað, sýður vatnið og fer svo hráefnið sjálfkrafa saman við. | |||||
Hettupúði | Ólöf Svava Helgadóttir | Sædís S. Arndal | Hofsstaðaskóli | 5 | ||
Lýsing: | Hettupeysa með púða inn í (sem er hægt að nota til að sofna á ferðalögum) | |||||
Hjólastóll | Kristófer Bjarki Hafþórsson | og | Ívar Logi Jóhannsson | Hlín Stefánsdóttir | Egilsstaðaskóli | 6 |
Lýsing: | Hjólastóll sem maður getur hallað sér í | |||||
Hnakkabelti | Rebekka Öxndal Ingibjörnsdóttir | og | Ragnheiður Kristinsdóttir | Kristín Erla | Flúðaskóli | 5 |
Lýsing: | Belti sem er fast við hnakkinn á hesti svo barn dettur ekki af baki / fyrir börn sem eru að læra á hestbak | |||||
Hólfið | Ásgeir Máni Ragnarsson | Þórey Eiríksdóttir | Brúarásskóli | 6 | ||
Lýsing: | Hólfaskiptur vatnsbrúsi. Brúsa er skipti niður í átta hólf. Það kemst 0,2 l í hvert hólf | |||||
Húfuhaldarinn | Birgir Orri | Haraldur Hrafnsson | Rimaskóli | 6 | ||
Lýsing: | Spíta með hólfum í hólfunum er pl´sass fyrir húfur eða vettlinga. | |||||
HækkaLækkar | Jaden Chelsea | og | Rakel Sara | Varði og Þórir | Seljaskóli | 5 |
Lýsing: | Fatahengi fyrir unga krakka sem ná ekki upp í fatahengi.. Hægt að fara upp og niður | |||||
Leiðréttingarappið | Ingibjörg Njálsdóttir | Arna Björk | Vesturbæjarskóli | 5 | ||
Lýsing: | App sem leiðréttir þegar krakkar lesa upphátt og leiðrétta | |||||
Mikrapeni | Olivia Daria | Guðvarður og Þórir | Seljaskóli | 5 | ||
Lýsing: | Penni sem sýnir þér hvernig á að skrifa orð, lítill skjár, tengt við google? | |||||
Róla 2000xD | Roskana Pawelzyk | Kristbjörg Sveinsdóttir | Brekkubæjarskóli | 7 | ||
Lýsing: | Róla sem hægt er að snúa við / ef það er blautt úti. | |||||
Seglabókarmerki | Guðlaug Björk Benediktsdóttir | Hrefna Egisldóttir | Egilsstaðaskóli | 6 | ||
Lýsing: | Bókamerki með seglum sem þú klemmir til hliðar á blaðsíðuna sem þú ert að lesa. Þú getur séð hvaða setningu þú ert á og getur meira segja lesið í myrkri. | |||||
Stafrófsbangsi | Birkir Snær Ólafsson | og | Christian Bragi | Guðrún Gyða Franklin | sjálandsskóli | 5 |
Lýsing: | Bangsi sem hjálpar þér að læra stafrófið | |||||
Stressblýantur | Guðný Edda Einarsdóttir | Hrefna Egilsdóttir | Egilsstaðaskóli | 6 | ||
Lýsing: | Blýantur með tökkum , rofum og stressgúmmí sem hægt er að fikta í til að róa sig | |||||
Stærðfræðikennsla | Bríet Agnarsdóttir | og | Tinna Rós Halldórsdóttir | Aldís Aðalsteinsdóttir | Brekkubæjarskóli | 6 |
Lýsing: | App sem hjálpar krökkum að læra | |||||
Stærðfræðitímaappið | Kamilla Rós Gústafsdóttir | og | Ingunn Lilja Arnórsdóttir | Margrét Guðmundsdóttir | Flúðaskóli | 6 |
Lýsing: | Þegar börn eru búin að vera legni í símanum kemur appið upp og börnin þurfa að leysa erfið stærðfræðidæmi | |||||
Takkaskóarplatti | Andrea Diljá Jóhannesdóttir | og | Alexandra Ósk Sverrissdóttir | Magnús V. Guðlaugsson | Laugalækjarskóli | 7 |
Lýsing: | Platti til að hlýfa takkaskóm, svo þeir endist betur. | |||||
TannþráðsTannburstinn | Hera Sjöfn Bjartsdóttir | Sædís S. Arndal | Hofsstaðaskóli | 5 | ||
Lýsing: | Tannbursti með tannþræði fyrir ferðalanga eða heima | |||||
Tungumálspil | Sóley líf Konráðsdóttir | og | Regína Lea Ólafsdóttir | Bryndís Böðvarsdóttir | Brekkubæjarskóli | 7 |
Lýsing: | Spil sem kennir manni tungumál | |||||
Upphá ristavél | Birta Kristín Ingadóttir | og | Tanja Kristín Ragnarsdóttir | Ólöf Dómhildur | Grunnskólinn á Ísafirði | 7 |
Lýsing: | Ristavélin er með langa og háa fætur sem hægt er að setja disk undir. Það er lúga undir ristavélinni svo brauðið detti niður á diskinn. |
Tilkynning hefur verið send út til forráðamanna og umsjónarkennara nemendanna. Í þó nokkrum tilfellum, vantaði þó netföng á umsóknunum, svo þó nokkrir hafa líklega ekki fengið tilkynninguna, – endilega ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið barn ykkar hér á listanum eða einhverjar spurningar vakna.
Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 20. og 21. maí næstkomandi. Hér er uppkastVið viljum líka minna á Vilja – hvatningarverðlaunin og hvet ykkur eindregið til að sækja um. Það er til mikils að vinna, bæði viðurkenning á starfi þínu, peningaverðlaun að fjárhæð allt að 250.000kr. (þau geta deilst niður á fleiri en einn kennara) og tækifæri til að láta gott af sér leiða í þágu nýsköpunarmenntar á Íslandi. Sótt er um hér: https://nkg.is/vilji-hvatningarverdlaun-nkg/ af dagskrá vinnustofunnar. Dag- og tímasetningar halda sér en nánari lýsing kemur síðar: