Búið er að velja í vinnustofu NKG 2019, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku.  Dómnefndina skipa:

  • Dagný F. Jóhannsdóttir Lögfræðingur / Fagstjóri hjá Einkaleyfisstofunni
  • Helena Jóhannsdóttir, innanhúshönnuður- og arkitekt hjá IKEA
  • Hildur Arnadóttur, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Hjalti Harðarson, markaðssérfræðingur hjá Arion banka
  • Hulda B. Baldursdóttir verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  • Svanborg R. Jónsdóttir, Dósent í listum og skapandi starfi, við Háskóla Íslands
  • Eyjólfur B. Eyjólfsson, verkefnisstjóri NKG og hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sér um utanumhald dómnefndarstarfa.

 Eins og alltaf var ekki auðvelt að skera niður úr öllum þeim mikla fjölda hugmynda sem bárust, – það er hreint með ólíkindum hvað þessir ungu nemendur geta galdrað fram flottar hugmyndir. En, – eins og alltaf, þá komast því miður ekki allir að og því þurfti að velja hugmyndir í úrslitin. Við viljum þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna og biðjum kennara að skila kærri kveðju til allra þeirra nemenda sem tóku þátt. HÉR er viðurkenningarskjal, sem þið megið gjarnan prenta út og láta krakkana fá(eða hengja upp í stofunni). Það er því miður allt of mikil fyrirhöfn að búa til viðurkenningaskjöl fyrir hvert og eitt barn, svo ég vona að þetta dugi.

Hér er listinn yfir hugmyndirnar sem komust áfram(fyrir neðan er uppkast að dagskrá vinnustofu):

Hugmynd Nafn nemenda   Nafn hópfélaga Kennari Skóli bekkur
Áfyllingurinn Karitas Ingvadóttir     Arna Björk Vesturbæjarskóli  7
Lýsing: Umhverfisvænt, minnka plastnotkun. Áfylliflöskur til að kaupa sjampó og hárnæringu / í búðum  Næringaskammtari / Sjampóskammtari 
Bátakútar Grímur Chunkuo Ólafsson     Sigurður Kristján Nikulásson Sunnulækjarskóli  5
Lýsing: Kútar sem bjarga bátum og fólki. Staðsett á 6 stöðum í kringum bátinn 
Bílastoppari Helena Huld Hafsteinsdóttir og Hekla Karlsdóttir Roth Arna Björk Vesturbæjarskóli  7
Lýsing: Bætt umferðaröryggi. Geisli sem kemur þegar rautt ljós kemur , ef bilar fara yfir á rauðu ljósi kemur viðvörunarhljóð / eða hlið kemur upp
Fuglaappið Guðmundur Týr Haraldsson      Hulda Hrund  Árbæjarskóli  5
Lýsing: Fugla – appið , appið þekkir fugla, tekur mynd þá segir appið hvaða fugl þetta er. 
Glansvaskur Katla Huld Halldórsdóttir  og Henný Katrín  Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir Grunnskólinn austan Vatna  5
Lýsing: Uppþvottabursti með mótor, gerir uppvask skemmilegra, og auðveldar fólki að vaska upp
Gráturljós Ester Sól Jónsdóttir      Sædís S. Arndal Hofsstaðaskóli  5
Lýsing: Fyrir yngri kynslóðina, ljósið nemur þegar ungt barn fer að gráta og þá kveinkar ljós sem róar barnið 
Hafragrautaruppáhellari Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba María Kristín Óskarsdóttir  Brekkubæjarskóli  6
Lýsing: Tímastilltur pottur til að elda hafragraut. Sett er vatn í pottinn og hráefni, tíminn stilltur. Pottur fer svo af stað, sýður vatnið og fer svo hráefnið sjálfkrafa saman við. 
Hettupúði Ólöf Svava Helgadóttir      Sædís S. Arndal Hofsstaðaskóli  5
Lýsing: Hettupeysa með púða inn í (sem er hægt að nota til að sofna á ferðalögum) 
Hjólastóll Kristófer Bjarki Hafþórsson og Ívar Logi Jóhannsson Hlín Stefánsdóttir Egilsstaðaskóli 6
Lýsing: Hjólastóll sem maður getur hallað sér í
Hnakkabelti Rebekka Öxndal Ingibjörnsdóttir  og Ragnheiður Kristinsdóttir  Kristín Erla  Flúðaskóli 5
Lýsing: Belti sem er fast við hnakkinn á hesti svo barn dettur ekki af baki / fyrir börn sem eru að læra á hestbak 
Hólfið Ásgeir Máni Ragnarsson     Þórey Eiríksdóttir Brúarásskóli 6
Lýsing: Hólfaskiptur vatnsbrúsi. Brúsa er skipti niður í átta hólf. Það kemst 0,2 l í hvert hólf
Húfuhaldarinn Birgir Orri     Haraldur Hrafnsson Rimaskóli 6
Lýsing: Spíta með hólfum í hólfunum er pl´sass fyrir húfur eða vettlinga. 
HækkaLækkar Jaden Chelsea og Rakel Sara  Varði og Þórir Seljaskóli  5
Lýsing: Fatahengi fyrir unga krakka sem ná ekki upp í fatahengi.. Hægt að fara upp og niður 
Leiðréttingarappið Ingibjörg Njálsdóttir     Arna Björk Vesturbæjarskóli  5
Lýsing: App sem leiðréttir þegar krakkar lesa upphátt og leiðrétta
Mikrapeni Olivia Daria      Guðvarður og Þórir Seljaskóli  5
Lýsing: Penni sem sýnir þér hvernig á að skrifa orð, lítill skjár, tengt við google? 
Róla 2000xD Roskana Pawelzyk     Kristbjörg Sveinsdóttir Brekkubæjarskóli  7
Lýsing: Róla sem hægt er að snúa við / ef það er blautt úti. 
Seglabókarmerki Guðlaug Björk Benediktsdóttir     Hrefna Egisldóttir Egilsstaðaskóli 6
Lýsing: Bókamerki með seglum sem þú klemmir til hliðar á blaðsíðuna sem þú ert að lesa. Þú getur séð hvaða setningu þú ert á og getur meira segja lesið í myrkri.
Stafrófsbangsi Birkir Snær Ólafsson  og Christian Bragi  Guðrún Gyða Franklin sjálandsskóli 5
Lýsing: Bangsi sem hjálpar þér að læra stafrófið 
Stressblýantur Guðný Edda Einarsdóttir     Hrefna Egilsdóttir Egilsstaðaskóli 6
Lýsing: Blýantur með tökkum , rofum og stressgúmmí sem hægt er að fikta í til að róa sig
Stærðfræðikennsla Bríet Agnarsdóttir og Tinna Rós Halldórsdóttir Aldís Aðalsteinsdóttir Brekkubæjarskóli  6
Lýsing: App sem hjálpar krökkum að læra
Stærðfræðitímaappið Kamilla Rós Gústafsdóttir og Ingunn Lilja Arnórsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Flúðaskóli 6
Lýsing: Þegar börn eru búin að vera legni í símanum kemur appið upp og börnin þurfa að leysa erfið stærðfræðidæmi
Takkaskóarplatti Andrea Diljá Jóhannesdóttir  og Alexandra Ósk Sverrissdóttir  Magnús V. Guðlaugsson Laugalækjarskóli  7
Lýsing: Platti til að hlýfa takkaskóm, svo þeir endist betur. 
TannþráðsTannburstinn  Hera Sjöfn Bjartsdóttir      Sædís S. Arndal Hofsstaðaskóli  5
Lýsing: Tannbursti með tannþræði fyrir ferðalanga eða heima 
Tungumálspil Sóley líf Konráðsdóttir  og Regína Lea Ólafsdóttir  Bryndís Böðvarsdóttir Brekkubæjarskóli  7
Lýsing: Spil sem kennir manni tungumál 
Upphá ristavél Birta Kristín Ingadóttir og Tanja Kristín Ragnarsdóttir Ólöf Dómhildur Grunnskólinn á Ísafirði 7
Lýsing: Ristavélin er með langa og háa fætur sem hægt er að setja disk undir. Það er lúga undir ristavélinni svo brauðið detti niður á diskinn.

 

Tilkynning hefur verið send út til forráðamanna og umsjónarkennara nemendanna. Í þó nokkrum tilfellum, vantaði þó netföng á umsóknunum, svo þó nokkrir hafa líklega ekki fengið tilkynninguna, – endilega ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið barn ykkar hér á listanum eða einhverjar spurningar vakna.

Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 20. og 21. maí næstkomandi. Hér er uppkastVið viljum líka minna á Vilja – hvatningarverðlaunin og hvet ykkur eindregið til að sækja um.  Það er til mikils að vinna, bæði viðurkenning á starfi þínu, peningaverðlaun að fjárhæð allt að 250.000kr. (þau geta deilst niður á fleiri en einn kennara) og tækifæri til að láta gott af sér leiða í þágu nýsköpunarmenntar á Íslandi. Sótt er um hér: https://nkg.is/vilji-hvatningarverdlaun-nkg/ af dagskrá vinnustofunnar.  Dag- og tímasetningar halda sér en nánari lýsing kemur síðar: