Þá hefur verið valið í vinnustofu NKG, þ.e. úrslitakeppnina en dómnefnd kom saman í síðustu viku.  Dómnefnd NKG 2018 skipa:

  • Rúnar Magnússon, markaðssérfræðingur hjá Arion banka
  • Linda Björk Helgadóttir Sérfræðingur hjá Einkaleyfisstofunni
  • Hildi Arnadóttur, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Helena Jóhannsdóttir, innanhúshönnuður- og arkitekt hjá IKEA
  • Hannes Ottósson verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  • Eyjólfur Eyjólfsson, verkefnisstjóri NKG og hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Var mikið verk og vandasamt var að velja 26 hugmyndir, úr þessum flotta hópi hugmyndaríkra grunnskólabarna sem komu fram með ótal frábærar hugmyndir, sem tengjast öllu milli himins og jarðar.

En, – eins og alltaf, þá komast því miður ekki allir að og því þurfti að velja hugmyndir í úrslitin, – hér kemur listi yfir þátttakendur í vinnustofunni. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga:

Hugmynd Nafn nemenda Nafn hópfélaga Kennari Skóli Bekkur
Ferðasnyrtibrúsi Sunneva Dís Halldórsdóttir Jóna Karítas Guðmundsdóttir Hólmfríður Guðmundsdóttir Árskóli 5
Lýsing: Sjámpóbrúsi með hólfum fyrir smáhluti
Fjölnota hólfapoki Ásdís Rún Jónsdóttir Ísold Assa Guðmundsdóttir Anna K. Þórarinsdóttir Kerhólsskóli 5
Lýsing: Innkaupa poki með hólfum
Fjölskyldutími Ylfa Sól Þorsteinsdóttir Lóa Kristín Guðmundsdóttir Foldaskóli 7
Lýsing: Forrit sem heldur utan um sameiginlegan tíma
fjölskyldunnar
Flugvéladekkjaskeið Guðjón Guðmundsson Sölvi Páll Guðmundsson Haraldur Hrafnsson Rimaskóli 7
Lýsing: Vindskeið sem snýr flugvéladekkjum fyrir lendingu
Gardínur 2.0 Baldur Finnsson Sædís S. Arndal Hofstaðaskóli 6
Lýsing: Gardínur með birtuskynjara
Gufusogari Helena Huld Hafsteinsdóttir Hekla Karlsdóttir Roth Arna Björk Vesturbæjarskóli 6
Lýsing: Lítið handhægt tæki sem dregur í sig raka
Hitamælispannan Kristján Nói Kristjánsson Arna Björk Vesturbæjarskóli 6
Lýsing: Hitamælir sem sýnir hvað ofnpanna er heit
Hjálmalás Salka Nóa Ármannsdóttir Arna Björk Vesturbæjarskóli 6
Lýsing: Hjólreiðahjálmur sem er einnig hjólalás
Kúku-minni Viðar Gauti Jónsson Matthías Fossberg Anna K. Þórarinsdóttir Kerhólsskóli 5
Lýsing: Forritanleg klassísk “Kúkú klukka”. Hjálpar fólki
með minnisglöp
Kúlukoddar Katrín Angela Jónsdóttir Magnús V. Guðlaugsson Laugalækjarskóli 7
Lýsing: Ferðakoddi úr samtengjanlegum kúlum
Langur sópur Ásdís Ólafsdóttir Sædís S. Arndal Hofstaðaskóli 7
Lýsing: Stækkanlegur sópur/kústur
Lestrarhjálp Sunneva Dís Freysdóttir Lilja Petrea Guðrún Hjörleifsdótti Brekkubæjarskóli 5
Lýsing: Borðspil sem hjálpar börnum að læra að lesa
lóðréttur snagi Jóhann Tyron De Jesus Andri Snær Þorvaldsson Brúarskóli, Vesturhlíð 5
Lýsing: Fatasnagi sem nýtir plássið betur
Lyklaskál Brynja Bjarnadóttir Elín Ósk Sæmundarskóli 6
Lýsing: Gefur frá sér hljóð ef lyklar eru við það að gleymast inni
Lyklatafla Valborg Lilja Gunnarsdóttir Ásthildur Una Jónsdóttir Varði og Þórir Seljaskóli 5
Lýsing: Segultafla fyrir lykla
Næringarappið Elsa Kristín Arnaldardóttir Sædís S. Arndal Hofstaðaskóli 5
Lýsing: Símaforrit sem sýnir hvort vara sé holl eða ekki
Plastleysari Freyja Gísladóttir Telma Rut Þorsteinsdóttir Svava Magnúsdóttir Grunnskóli Reyðarfjarðar 6
Lýsing: Tæki sem safnar saman plsti úr sjó
Regnshaldir(kápa) Kristófer H. Kjartansson Sædís S. Arndal Hofstaðaskóli 7
Lýsing: Regnkápa sem safnar vatni
Rúlluendastimpill Trausti Helgi Atlason Trausti Ingólfsson Ólafur Atli Sindrason Varmahlíðarskóli 6
Lýsing: Stimplar dagestningu á heyrúlluplast
Sauðfjárteljari Lydía Einarsdóttir Þóra Emelía Ólafsdóttir Unnur Erla Sveinbjörnsdóttir Varmahlíðarskóli 7
Lýsing: Símaforrit sem telur kindur
SiliGos Eyrún Hjálmarsdóttir Valdís Una Guðmannsdóttir Kristín Erla Ingimarsdóttir Flúðaskóli 7
Lýsing: Margnota áfyllingarbrúsi fyrir gosdrykki úr verslunum
Snúruhulstur Ísabella Björk Gestsdóttir Sunneva Þorvaldsdóttir Sædís S. Arndal Hofstaðaskóli 5
Lýsing: Vörn gegn því að dýr nagi sundur snúrur
Snúskápur Karen Óttarsóttir Varði og Þórir Seljaskóli 6
Lýsing: Snúningshilla fyrir ísskápa
Sturtuhandklæðaskápur Jóakim Uni Arnaldsson Arna Björk Vesturbæjarskóli 5
Lýsing: Lítill skápur til að geyma handklæði í sturtuklefum
Svefnvaki Vignir Gauti Guðjónsson Björn Darri Ásmundsson Kristbjörg Sveinsdóttir Brekkubæjarskóli 6
Lýsing: Skynjari sem pípir þegar ökumaður er að sofna undir stýri
Vasapeningar Saga Líf Ágústdóttir Ásdís Ósk Brynjarsdóttir Jóhanna Ása Einarsdóttir Grunnskólinn á Ísafirði 7
Lýsing: Forrit sem tekur saman
vasapening fyrir verkefnavinnu

Tikynning hefur verið send út til forráðamanna og umsjónarkennara nemendanna. Í þó nokkrum tilfellum, vantaði þó netföng á umsóknunum, svo þó nokkrir hafa líklega ekki fengið tilkynninguna, – endilega ekki hika við að hafa samband ef þið sjáið barn ykkar hér á listanum eða einhverjar spurningar vakna.

Vinnustofan sjálf, verður haldin í Háskóla Reykjavíkur, dagana 24. og 25. maí næstkomandi. Úrslitin og sýning á verkum barnana, verður svo á laugardeginum, 26. maí. Lilja Alfreðsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra flytur ávarp og afhendir aðalverðlaun NKG 2018