Lokahóf

Frábær dagur að baki. Afhending verðlauna fóru fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í dag en keppnin var nú haldin í 21. sinn. Athöfnin fór fram í Sólinni, í Háskólanum í Reykjavík, sem er einn af bakhjörlum keppninnar. Átján þátttakendur fengu verðlaun fyrir hugmyndir sínar af þeim 53 þátttakendum sem tóku þátt í úrslitum. Í ár bárust 2906 hugmyndir frá 44 grunnskólum víða um land sem kenna á miðstigi.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaunin og flutti hátíðarræðu. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra flutti hvatningarræðu, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.

Farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri skóla

Farandbikarinn í flokki stærri skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ. Var þetta fimmta árið í röð sem Hofsstaðaskóli hlýtur bikarinn.

Farandbikarinn í flokki minni skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Brúarásskóli á Fljótdalshéraði annað árið í röð

Guðrúnarbikarinn

Anna Hulda Ólafsdóttir afhenti bikarinn til minningar um móður sína Guðrúnu Þórsdóttir.

Tristan Snær Björnsson og Reynir Aron Magnússon úr Laugarnesskóla voru með hugmynd sem heitir „Video School“ sem kynnir upphaf grunnskóla fyrir leikskólakrökkum.

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar var afhentur í fyrsta sinn, Paul Jóhannsson er frumkvöðull NKG og stofnaði keppnina fyrir 21 ári. Hann Varði lungan af ævi sinni í eflingu nýsköpunarmenntar á Íslandi. Tæknibar Pauls Jóhannssonar var veittur til Atla Gauta Ákason, en hugmynd hans „Hangbekkur“ var tæknileg lausn á vandamálum siglingamanna sem vilja æfa jafnvægi á skútu án þess að vera staddur í opnu hafi.

Verðlaunahafar NKG2013

Nafn Flokkur Nafn á hugmynd Skóli Sæti
Helena Ýr Marinósdóttir Uppfinning Tumanál Hofsstaðaskóli 1
Sylvía Sara Ágústsdóttir Uppfinning Tumanál Hofsstaðaskóli 1
Guðbjörg Marín Guðmundsdóttir Uppfinning Rúllubreiðarinn Hólabrekkuskóli 2
Guðrún Helga Darradóttir Uppfinning Rúllubreiðarinn Hólabrekkuskóli 2
Friðþóra Sigurjónsdóttir Uppfinning Sundlaugarljós Hofsstaðaskóli 3
Bjarkey Rúna Jóhannsdóttir Útlits- og formhönnun Sæng í sængurveri Hólabrekkuskóli 1
Kristmundur Orri Magnússon Útlits- og formhönnun Sleipsokkur Hofsstaðaskóli 2
Leifur Skarphéðinn Snorri Árnason Útlits- og formhönnun Sleipsokkur Hofsstaðaskóli 2
Ísabella Halldórsdóttir Útlits- og formhönnun Vöggukjóll Hofsstaðaskóli 3
Kristina Atanasova Atanasova Útlits- og formhönnun Vöggukjóll Hofsstaðaskóli 3
Sandra María Sævarsdóttir Landbúnaður Kindaleitari Hofsstaðaskóli 1
Kristrún María Gunnarsdóttir Landbúnaður Smjörstifti Háaleitisskóli-Hvassaleiti 2
Ragnheiður Þorsteinsdóttir Landbúnaður Bændahjálp Egilsstaðaskóli 3
Margrét María Ágústsdóttir Landbúnaður Bændahjálp Egilsstaðaskóli 3
Elva Dögg Ingvarsdóttir Landbúnaður Bændahjálp Egilsstaðaskóli 3
Almar Aðalsteinsson Tölvur- og tölvuleikir Vikingar á ferð og flugi Egilsstaðaskóli 1
Máney Guðmundsdóttir Tölvur- og tölvuleikir Ofnæmisvarnarkerfi Hólabrekkuskóli 2
Helga María Magnúsdóttir Tölvur- og tölvuleikir GPS tæki bílastæði Hofsstaðaskóli 3