heimasíða Ungra Frumkvöðla, er komin í loftið. Unnið er því að að setja heimasíðuna upp á íslensku.

Þátttakendur í Ungum frumkvöðlum stofna og reka eigið fyrirtæki og vinna að viðskiptahugmynd á 13 vikna námskeiði sem miðar að því að efla skilning þeirra á fyrirtækjarekstri. Undir lok námskeiðsins, taka nemendur þátt í vörusýningu í Smáralind, þar sem þau sýna og selja vörur sínar. Veitt eru verðlaun í ýmsum flokkum og sigurvegarinn tekur þátt í Evrópukeppni ungra frumkvöðla.

Í nóv. 2015 skipuð ný stjórn Ungra frumkvöðla – Junior Achievement á Íslandi. Nýja stórn skipa Mennta- og menningarmálaráðherra, Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands ásamt forstjórum Arion banka, Eimskipa, Landsvirkjunar, Samtaka atvinnulífsins og Sjávarklasans auk rektors Háskólans í Reykjavík. Minna Mellery var ráðin framkvæmdastjóri Junior Achievement á Íslandi.
Junior Achievement (JA) eru alþjóðleg, frjáls félagasamtök  sem starfa í 123 löndum. Um  10.5 milljón nemendur taka þátt í verkefnum á vegum samtakana. Markmið Junior Achievement  er að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina og auka færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamennt í skólum.
Hér á landi hefur verkefni Junior Achievement verið rekið í nokkrum framhaldsskólum undir merkjum Ungra Frumkvöðla. Nemendur í Ungum Frumkvöðlum þurfa að stofna og reka eigið fyrirtæki og vinna að viðskiptahugmynd á 13 vikna námskeiði sem miðar að því að efla skilning þeirra á  fyrirtækjarekstri.  Þátttakendur fjármagna stofnun fyrirtækis með sölu hlutabréfa, ráða í stöðugildi og búa til ítarlega viðskiptaáætlun. Henni er hrint í framkvæmd og fyrirtækið að lokum gert upp með ársreikningi og skýrslu í lok tímabilsins. Undir lok námskeiðsins, taka nemendur þátt í vörusýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind.
Veitt eru verðlaun í ýmsum flokkum og haldin er sigurhátíð þar sem úrslitakeppni fer fram og sigurvegari Ungra Frumkvöðla er valinn. Sigurvegarinn tekur þátt í Evrópukeppni Ungra Frumkvöðla.
http://ungirfrumkvodlar.is/