Þá hefur dómnefnd komist að niðurstöðu um sigurvegara NKG 2020. Dómnefndina skipa:

Ásdís Kristmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Hugverkastofu
Hannes Páll Þórðarson, umsjónarmaður rafeindaverkstæðis í Háskóla Reykjavíkur
Maríanna Finnbogadóttir, sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka og
Dr. Svanborg Rannveig Jónsdóttir, prófessor í listum og skapandi starfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og forstöðumaður RASK (Rannsóknastofu um skapandi skólastarf).

Það hefur ekki verið auðvelt að velja sigurvegara, í þessum „fordæmalausu aðstæðum“ þar sem dómarar höfðu í reynd ekkert nema einfaldar umsóknir, til að dæma eftir. Vegna samkomubanns, féll vinnustofa Nýsköpunarkeppni grunnskólanna niður en áfram var þó tekið við umsóknum og framlengdum við hann reyndar fram í maí til að gefa fleirum kost á að senda inn hugmynd. Við renndum blint í sjóinn með viðtökur/fjölda umsókna en nú hefur komið í ljós að þær voru þó nokkrar og gat dómnefnd fundið fínar hugmyndir, í sigurflokka NKG.

Sigurvegarar  í flokkum fá peningaverðlaun ásamt viðurkenningarskjali, undirritað af Herra Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands. Þeir nemendur sem komust í úrslit fá viðurkenningarskjal, undirritað af Lilju Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra Íslands.

Aðrir nemendur sem tóku þátt fá viðurkenningarskjal fyrir þátttöku. Það er hægt að nálgast það HÉR og biðjum við kennara um að prenta það út og gefa öllum sem tóku þátt. Þið megið líka koma þeim skilaboðum til þeirra, að þó þau hafi ekki fengið verðlaun þá geti því miður ekki allir unnið en að mjög margar hugmyndir hafi verið frábærar og hvetjum við öll til að halda áfram að vera skapandi – þau vinna kannski bara á næsta ári. Þetta á líka við ykkur kennara sem ekki hrepptu verðlaunasæti nú – virkilega flott starf sem þið hafið unnið:)

Úslitin má nálgast HÉR