Úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG 2014)

Lokahóf 25. maí 2014

Í nýafstaðinni vinnusmiðju NKG beittu 39 hugmyndasmiðir sköpunargáfu sinni við að útfæra hugmyndir sínar í það form sem lýsir henni best, með smíðum, saumum, teikningum, forritun og framsöguþjálfun. Til leiðsagnar voru kennarar og nemendur HR og HÍ, fulltrúar frá SKEMA, FAFU og JCI á Íslandi.

Afhending verðlauna fór fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í dag en keppnin var nú haldin í 23. sinn. Athöfnin fór fram í Sólinni, í Háskólanum í Reykjavík, sem er einn af bakhjörlum keppninnar. Ellefu þátttakendur fengu verðlaun fyrir hugmyndir sínar af þeim 39 þátttakendum sem tóku þátt í úrslitum. Í ár bárust hugmyndir frá 1800 þátttakendum frá 32 grunnskólum sem kenna á miðstigi, víða um land.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaunin og flutti hátíðarræðu. Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu menntamála flutti hvatningarræðu, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.

Þátttakendur í vinnusmiðju NKG2014

Tilgangur keppninnar er að efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og hvernig megi þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir.

Nýr aðalbakhjarl kynntur

Arion banki og Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) hafa gert með sér samkomulag og mun Arion banki verða aðalbakhjarl NKG næstu þrjú árin. Hélt Elísabet Grétarsdóttir markaðsstjóri Arion banka stutta tölu þar sem hún ræddi m.a. hvernig Arion banki styður með markvissum hætti við margvíslegt nýsköpunar- og frumkvöðlastarf.

Elísabet Grétarsdóttir, markaðsstjóri Arion banka:

„Það er von okkar að þið sem tókuð þátt í vinnusmiðju NKG í ár verðið í farabrotti þeirra frumkvöðla sem fara í gegnum Startup Reykjavík verkefni Arion banka í nánustu framtíð. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að styðja við verkefni sem hvetur til innleiðingu nýsköpunarkennslu í grunnskólum landsins.“

Farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri skóla

 

Farandbikarinn í flokki stærri skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ. Var þetta sjötta árið í röð sem Hofsstaðaskóli hlýtur bikarinn.

Farandbikarinn í flokki minni skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Verðlaunahafar í ár

Verðlaun Flokkar Hugmynd Nafn Skóli
Bronsverðlaun 5. bekkur Herðatré og hankar Stefanía Stella Baldursdóttir Húsaskóli
Silfurverðlaun 5. bekkur Þyngdarloftsskynjarinn Nína Ægisdóttir Hofsstaðaskóli
Gullverðlaun 5. bekkur Þjófavörn f/hjól Andrea Marý Sigurjónsdóttir Víðistaðaskóli
Bronsverðlaun 6. bekkur Rörmortél Hildur Kaldalóns Björnsdóttir Melaskóli
Bronsverðlaun 6. bekkur Rörmortél Kristín Pálmadóttir Thorlacius Melaskóli
Silfurverðlaun 6. bekkur Hringinn í kringum Ísland Ásdís Hvönn Jónsdóttir Egilsstaðaskóli
Silfurverðlaun 6. bekkur Hringinn í kringum Ísland Hafdís Guðlaugsdóttir Egilsstaðaskóli
Gullverðlaun 6. bekkur Lyfja minnari Ágústa Líndal Hofsstaðaskóli
Bronsverðlaun 7. bekkur Moðpressari Ólafur Ísar Jóhannesson Grunnskólinn austan vatna
Silfurverðlaun 7. bekkur Ferðabrú fyrir fé og hross Þórir Árni Jóelsson Varmahlíðarskóli
Gullverðlaun 7. bekkur Hóffjaðratínari Laufey Helga Ragnheiðardóttir Flúðaskóli

 

Mynd verðlaunahafar NKG 2014:

Guðrúnarbikarinn

Anna Hulda Ólafsdóttir afhenti „Guðrúnarbikarinn“ til minningar um móður sína Guðrúnu Þórsdóttir. Áróra Ísól Valsdóttir úr Laugalækjarskóla með hugmyndina „Lófaband“ hlaut „Guðrúnarbikarinn“ með þá von að bikarnum fylgi sá kraftur og hvetjandi innblástur sem fylgdi Guðrúnu Þórsdóttur, sem var ein af upphafsaðilum keppninnar.

Paul Jóhannsson bikarinn

Paul Jóhannsson stofnandi NKG, afhenti Degi Kára Guðnasyni og Gissuri Þór Magnússyni „Tæknibikar Pauls Jóhannssonar“ fyrir framúrskarandi sköpunargáfu og eljusemi í vinnusmiðju NKG með hugmynd sína „Boltavekjarann“.

VILJI – hvatningarverðlaun NKG

Margar tilnefninganna voru mjög verðugar og mismunandi þættir stóðu uppúr. En niðurstaða dómnefndar er að veita Sædísi S. Arndal, kennara í Hofsstaðaskóla í Garðabæ, VILJA – hvatningarverðlaun NKG og titilinn „Nýsköpunarkennari grunnskólanna 2014“.

Tilgangur VILJA – Hvatningarverðlauna NKG er að hvetja kennara til dáða, draga fram og deila aðferðum sem efla sköpunargáfu nemenda í ferlinu frá hugmynd til framkvæmdar og hvetja til þátttöku í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG). Bæta gæði nýsköpunarkennslu og efla vitund um nýsköpunarmennt. Í framhaldinu verður aðferðafræði vinningshafa hvers árs deilt á heimasíðu NKG til fróðleiks og hvatningar fyrir aðra kennara.

Verðlaun NKG eru glæsileg:

Fyrstu verðlaun er I Pad mini og þriðju verðlaun Bamboo teikniborð í boði Samtaka Iðnaðarins og Epli.is. Í önnur verðlaun er glæsilegt námskeið í tölvuleikjaforritun frá Skema.is og iPod shuffle. Verðlaun eru veitt í þremur keppnisflokkum í 1. 2. og 3. sæti.

Auk þess fá 10 stigahæstu þátttakendurnir tveggja daga ferð í Fab Lab (stafræna smiðju) með öllu inniföldu í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Að lokum mun Háskóli Íslands veita 10 stigahæstu þátttakendunum gjafabréf í Háskóla unga fólksins.

Frekari upplýsingar veitir:

Anna Þóra Ísfold, framkvæmdastjóri NKG. Sími: 615 0574; nkg@nkg.is.